fbpx
Þriðjudagur 24.júní 2025
Fókus

Ástarævintýri og skilnaðir ársins 2021

Fókus
Sunnudaginn 2. janúar 2022 19:30

Samsett mynd.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rétt eins og árið 2020 gerðu aðstæður ársins okkur enga greiða þegar kom að því að leita að ástinni, eða besta falli hressum skemmtistaðasleik. En ástin fór ekki í sóttkví og hófust ný ástarævintýri á meðan önnur runnu sitt skeið.

Egill og Tanja Ýr. Mynd/Instagram

Hættu saman: Tanja Ýr og Egill

Þrálátur orðrómur var á kreiki í sumar um að Tanja Ýr Ástþórsdóttir, athafnakona og áhrifavaldur, og Egill Fannar Halldórsson, athafnamaður og áhrifavaldur, væru hætt saman. Fyrst um sinn vísaði Egill því á bug að þau væru hætt saman en í september var það staðfest að parið hefði ákveðið að fara sitthvora leið. Tanja og Egill höfðu verið saman í um áratug og trúlofuðu sig árið 2018.

Matti og Kristlín. Myndabanki Torgs.

Hættu saman: Matti og Kristlín

Listaspírurnar Matthías Tryggvi Haraldsson, söngvari Hatara og leikskáld, og Kristlín Dís Inglínardóttir, blaðamaður, hættu saman í mars.

Matthías Tryggva þekkja flestir landsmenn sem söngvara Hatara, hljómsveitarinnar sem fór fyrir hönd Íslands í Eurovision árið 2019 með lagið „Hatrið mun sigra.“ Kristlín Dís var blaðamaður hjá Fréttablaðinu og hefur vakið mikla athygli fyrir pistlaskrif sín síðustu ár.

Matthías og Brynhildur trúlofuðust. Mynd/Instagram

Byrjuðu saman: Matti og Brynhildur

Matthías fann ástina á ný í örmum tónlistarkonunnar Brynhildar Karlsdóttur. Hann fór á skeljarnar í Sky Lagoon í september. Hann birti mynd af trúlofuninni á Instagram og sagði að ástin væri ævintýri og að Brynhildur gerir hann óskiljanlega hamingjusaman.

Það er óhætt að segja að parið deili sömu ástríðum. Brynhildur er söngkona hljómsveitanna Hormóna og Kvikindi, hún hefur einnig gert það gott sem leikkona. Hún hefur starfað sem aðstoðarmaður leikstjóra í Þjóðleikhúsinu.

Sindri og Kristín. Myndabanki Torgs.

Byrjuðu saman og hættu saman: Kristín Péturs og Sindri

Kristín Pétursdóttir, leikkona og áhrifavaldur, og Sindri Þórhallsson, verslunarstjóri í tískufataversluninni Húrra Reykjavík, byrjuðu saman í byrjun árs. Þau héldu sambandi sínu mestmegnis frá samfélagsmiðlum og skildu leiðir þeirra í apríl.

Kristín hefur verið að gera það gott um árabil sem leikkona og áhrifavaldur. Hennar fyrsta verkefni sem leikkona var hlutverk í myndinni Órói árið 2010. Síðan þá hefur hún leikið í ýmsum verkefnum og auglýsingum, eins og þáttunum Fólkið í blokkinni og á sviði, meðal annars í leikritinu Mæður sem sló í gegn meðal gagnrýnenda.

Skjáskot/Instagram

Byrjuðu saman: Kristín Péturs og Haukur

Kristín gafst ekki upp á ástinni og kynntist hinum metnaðargjarna kokki Hauki Má Haukssyni, yfirkokki og einum eiganda Yuzu-hamborgarastaðanna.

Haukur Már og flottan feril að baki í veitingargeiranum. Hann og viðskiptafélagar hans Sindri Snær Jensson og Jón Davíð Davíðsson, eigendur fataverslunarinnar Húrra, opnuðu fyrsta Yuzu-staðinn í lok árs 2019 á Hverfisgötu en síðan hefur bæst við annar staður í BORG29-mathöllinni.

Davíð og Jóhanna Guðrún.

Hættu saman: Jóhanna Guðrún og Davíð

Í byrjun september var greint frá því að tónlistarhjónin Jóhanna Guðrún Jónsdóttir og Davíð Sigurgeirsson væru skilin að borði og sæng. Jóhanna og Davíð giftu sig árið 2018 og eiga saman tvö börn.

Bæði hafa verið mjög áberandi í tónlistarsenunni á Íslandi. Jóhanna Guðrún er ein af stærstu söngdívum landsins og skilaði Íslandi öðru sætinu í Eurovision-keppninni árið 2009. Davíð er gítarleikari, útsetjari og kórstjóri sem hefur notið velgengni á sínu sviði.

Jóhanna Guðrún og Ólafur Friðrik.

Byrjuðu saman: Jóhanna Guðrún og Ólafur Friðrik

Jóhanna Guðrún fann ástina á ný í örmum gamals kærasta. Jóhanna Guðrún og Ólafur Friðrik Ólafsson voru saman árið 2008 til 2010 og kviknaði ástin á ný hjá þeim í ár. Parið á einnig von á sínu fyrsta barni saman.

Donna Cruz.

Hættu saman: Donna Cruz og Ari Steinn

Leiðir skildu hjá leikkonunni Donnu Cruz og Ara Stein Skarphéðinssyni í sumar. Donna hefur getið sér gott orð sem leikkona og fór meðal annars með aðalhlutverk í myndinni Agnes Joy sem hlaut mikið lof gagnrýnenda.

Villi Neto.

Hættu saman: Villi Neto og Katrine

Leikarinn og grínistinn Vilhelm Neto, betur þekktur sem Villi Neto, og Katine Gregersen Vedel hættu saman í ár. Villi Neto hefur verið áberandi innan grínsenunnar á landinu um árabil og njóta grínsketsar hans mikilla vinsælda á samfélagsmiðlum.

Hann útskrifaðist úr Copenhagen International School of Performing Arts vorið 2019.

Björn Ingi og Kolfinna Von.

Byrjuðu (aftur) saman: Björn Ingi og Kolfinna Von

Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans og fyrrverandi borgarfulltrúi, og athafnakonan Kolfinna Von Arnardóttir, tóku aftur saman í ár.

Þau gengu í það heilaga árið 2015 en skildu að borði og sæng í fyrra, en amor stóð uppi sem sigurvegari og opinberuðu þau samband sitt á ný í sumar.

Kristján Ra og Sandra Hlíf. Mynd/Instagram

Byrjuðu saman: Sandra Hlíf og Kristján Ra

Leiðir Kristjáns Ra Kristjánssonar, athafnamanns, og Söndru Hlífar Ocares, verkefnastjóra, lágu saman í ár og opinberuðu þau sambandið með stæl á Instagram í maí.

Sambandstilkynningin.

Byrjuðu saman: Freyr og Kolfinna

Freyr Gylfason fyrrum sjónvarpsstjóri Stöðvar 2 og Kolfinna Baldvinsdóttir ritstjóri hjá HB útgáfu eru eitt af nýjum pörum ársins.

Kolfinna hefur starfað á ýmsum fjölmiðlum og var um tíma með þátt á Ínn, RÚV og Stöð 2. Hún er sagnfræðingur að mennt.

Gummi Tóta og Guðbjörg Ósk. Skjáskot/Instagram

Byrjuðu saman: Gummi Tóta og Guðbjörg Ósk

Guðmundur Þórarinsson, landsliðsmaður í fótbolta, fann ástina í örmum Guðbjargar Óskar Einarsdóttur. Guðmundur er einnig þekktur sem Gummi Tóta. Hann spilar með New York City FC í bandarísku MLS-deildinni, og einnig með íslenska karlalandsliðinu. Auk þess hefur Guðmundur gefið út nokkur lög sem hafa slegið í gegn.

Laufey og Bergþór.

Byrjuðu saman: Laufey Rún og Bergþór

Laufey Rún Ketisdóttir og Bergþór Ólason sýndu það og sönnuðu að ástin spyr ekki um flokksskírteini. Laufey Rún er lögfræðingur og fyrrum aðstoðarmaður Sigríðar Andersen og núverandi starfsmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Bergþór er viðskiptafræðingur og þingmaður Miðflokksins.

Í október var greint frá því að parið á von á sínu fyrsta barni saman. Bergþór á dóttur úr fyrra sambandi.

Guðlaug og Guðmundur. Myndabanki Torgs.

Byrjuðu saman: Guðlaug og Guðmundur

Nýtt ofurpar leit dagsins ljós þegar framkvæmdarstjórinn Guðlaug Kristinsdóttir og fjárfestirinn Guðmundur Hafsteinsson tóku saman. Guðmundur var áður yfirmaður vöruþróunar hjá Google assistant og er einnig í stjórn Icelandair. Guðlaug er framkvæmdarstjóri Stekks fjárfestingafélags.

Björk og Alexander.

Byrjuðu saman: Björk og Alexander

Söngkonan glæsilega Björk Guðmundsdóttir og kokkurinn Alexander Jallow byrjuðu að stinga saman nefjum í vor.

Alex eins og hann er kallaður er frá er frá Gambíu og stofnaði veitingastaðinn Ogolúgó á Laugavegi í september 2020 en staðurinn vakti mikla lukku. Stóð Alex meðal annars fyrir fjáröflunarkvöldverði til styrktar hjálparstafi Kirkjunnar. Ogolúgó sérhæfir sig í afrískum réttum en lokaði í mars síðastliðin en vonir standa til að hann opni á ný eftir að faraldri léttir. Alexander hefur búið á Íslandi lengi og á meðal annars 18 ára son sem spilar fótbolta með HK og þykir mjög efnilegur.

Björk hefur dvalið mikið á Íslandi síðustu ár en sonur hennar Sindri Eldon eignaðist sitt fyrsta barn fyrir tveimur árum og hefur Björk blómstrað í ömmuhlutverkinu.

Anton Kristinn og Ellen Erla. Mynd/Eyþór Árnason

Hættu saman: Anton Kristinn og Ellen Erla

Athafnafólkið Anton Kristinn Þórarinsson og Ellen Erla Egilsdóttir slitu samvistum í haust.

Mikið hafði gengið á lífi parsins fyrrverandi undanfarið. Í september mættu þau saman og gáfu skýrslur fyrir dómi í réttarhöldunum vegna Rauðagerðismorðsins en Anton Kristinn hafði um tíma réttarstöðu grunaðs manns í málinu.

Skýrslutakan yfir Ellen Erlu var sérstaklega tilfinningaþrungin en þar sagði hún að málið hefði sundrað fjölskyldu sinni og ekkert væri nú eins og það hafi áður verið.

Anton Kristinn og Ellen Erla eiga saman tvö börn.

Binni Löve og Edda Falak. Myndir/Instagram

Hættu saman: Edda Falak og Binni Löve

Áhrifavaldurinn, hlaðvarpsstjórnandinn og íþróttakonan Edda Falak og áhrifavaldurinn Brynjólfur Löve hættu saman snemma á árinu. Greint var frá sambandslitum þeirra í mars.

Edda Falak er mjög öflug íþróttakona í CrossFit og næringarþjálfari. Hún nýtur einnig mikilla vinsælda á Instagram og sér þar að auki um eitt vinsælasta hlaðvarp landsins, Eigin Konur.

Brynjólfur Löve, betur þekktur sem Binni Löve, er faðir, vinsæll áhrifavaldur og verkefnastjóri stafrænna miðla hjá Árvakri.

Edda Falak og Kristján Helgi. Mynd/Instagram

Byrjuðu saman: Edda Falak og Kristján Helgi

Edda fann ástina í örmum glímukappans Kristjáns Helga Hafliðasonar. Hann er einnig þjálfari hjá Mjölni og virðist parið vera yfir sig ástfangið.

Kristján Þór og Gunna Dís.

Hættu saman: Kristján Þór og Gunna Dís

Kristján Þór Magnússon og Guðrún Dís Emilsdóttir héldu hvort í sína áttina í haust.

Kristján Þór er sveitastjóri Norðurþings en var í veikindaleyfi fram að áramótum. Guðrún Dís er þekkt undir nafninu Gunna Dís og var afar vinsæl útvarpskona á Rás 2 áður en hjónin fluttu til Húsavíkur er Kristján tók við stöðu sveitarstjóra.

Samsett mynd.

Byrjuðu saman: Ástrós Trausta og Adam Karl

Samkvæmisdansarinn og áhrifavaldurinn Ástrós Traustadóttir og framkvæmdastjórinn Adam Karl Helgason rugluðu saman reytum í ár og fluttu inn saman fyrir stuttu.

Landsmenn kannast við Ástrós úr þáttunum Allir geta dansað. Hún er einnig vinsæl á Instagram og meðlimur LXS-gengisins svokallaða.

Adam er framkvæmdastjóri CityBike EHF og ZOLO Iceland.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Forsprakki Manowar segir Íslendingum að brýna stálið – „Búist við tónleikum þar sem jörðin undir fótum ykkar skelfur“

Forsprakki Manowar segir Íslendingum að brýna stálið – „Búist við tónleikum þar sem jörðin undir fótum ykkar skelfur“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Svona lítur stjarnan úr einu umtalaðasta tónlistarmyndbandi sögunnar út í dag

Svona lítur stjarnan úr einu umtalaðasta tónlistarmyndbandi sögunnar út í dag
Fókus
Fyrir 4 dögum

Fór í trekant með kærustunni og vinkonu hennar – Það hafði ófyrirséðar afleiðingar

Fór í trekant með kærustunni og vinkonu hennar – Það hafði ófyrirséðar afleiðingar
Fókus
Fyrir 4 dögum

Nýjar íbúðir seljast verr en áður – En hvað kosta íbúðir í nýbyggingum á höfuðborgarsvæðinu?

Nýjar íbúðir seljast verr en áður – En hvað kosta íbúðir í nýbyggingum á höfuðborgarsvæðinu?
Fókus
Fyrir 5 dögum

Quarashi koma saman aftur á Lopapeysunni

Quarashi koma saman aftur á Lopapeysunni
Fókus
Fyrir 5 dögum

Feilspor Viðars hefur fengið 1,6 milljón áhorfa – „Ótrúleg tímasetning!“

Feilspor Viðars hefur fengið 1,6 milljón áhorfa – „Ótrúleg tímasetning!“
Fókus
Fyrir 1 viku

Ormhildarsaga glæný íslensk teiknimyndasería fyrir börn er tímamótaverk

Ormhildarsaga glæný íslensk teiknimyndasería fyrir börn er tímamótaverk
Fókus
Fyrir 1 viku

Aukasýning á vinsælustu ABBA sýningu heims í Hörpu

Aukasýning á vinsælustu ABBA sýningu heims í Hörpu