fbpx
Mánudagur 06.maí 2024
Eyjan

Líkir stækkandi borgarbálkni við skuldsettan vogunarsjóð

Eyjan
Miðvikudaginn 8. desember 2021 09:19

Eyþór Arnalds

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Áætlunin gerir ráð fyrir viðstöðulausri skuldasöfnun allt næsta kjörtímabil og er ljóst að reksturinn er engan veginn sjálfbær. Ýmislegt í rekstri samstæðu borgarinnar minnir á skuldsettan vogunarsjóð en afkoma borgarinnar byggir á afleiðum í áli og gjaldmiðlum, endurmati á félagslegu húsnæði og fjárfestinga í fyrirtækjum.“

Þetta sagði Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur, vegna afgreiðslu fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar fyrir árið 2022 og fimm ára áætlun Reykjavíkurborgar fyrir árin 2022-2026. 

„Í upphafi kjörtímabils voru heildarskuldir borgarinnar 299 milljarðar króna sem greiða átti niður samkvæmt sáttmála meirihlutans. Í dag eru skuldir borgarinnar komnar yfir 400 milljarða og fara vaxandi en ráðgert er að þær fari 450 milljarða 2025,“ segir Eyþór og bætir við: „Gera má ráð fyrir að upphæðin verði talsvert hærri enda vekur sérstaka athygli að ekki er gert ráð fyrir að Orkuveitan greiði skuld upp á meira en þrjá milljarða við Glitni þó dómur liggi fyrir um að það beri að gera. Þá er ekki gert ráð fyrir krónu í rekstur borgarlínu næstu fimm árin en ekkert er minnst á hvernig það samræmist góðri áætlanagerð og öðrum fyrirheitum.“

Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu til sölu á fyrirtækinu Ljósleiðaranum ehf. (áður Gagnaveita Reykjavíkur) og að söluandvirðið yrði nýtt til að lækka skuldir og fjármagnskostnað í samstæðu Reykjavíkurborgar. Einnig lögðu þeir til að Malbikunarstöðin Höfði yrði seld. Þá lögðu sjálfstæðismenn til að gera leigjendum Félagsbústaða mögulegt að eignast það húsnæði sem það leigir af Félagsbústöðum. Meirihluti borgarstjórnar felldi tillögurnar.

„Tillögur borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um sölu eigna sem ekki tilheyra kjarnastarfssemi borgarinnar voru ekki samþykktar þrátt fyrir augljósa kosti þess að lækka skuldir og fara úr samkeppnisrekstri. Mikil fjölgun borgarstarfsmanna er ekki örvandi efnahagsaðgerð. Þvert á móti hefur stóraukinn kostnaður í rekstri borgarinnar leitt til þess að skuldir og skattar hafa hækkað úr hófi fram. Næsta vor verður kosið um hvort áfram verði haldið á þessari braut stækkandi bákns eins og það birtist í fimm ára áætlun vinstri meirihlutans í borginni,“ segir Eyþór.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fast skotið á Höllu Hrund – Líkt við froðusnakk sem hafi það eitt fram að bjóða að hafa búið í blokk og farið í sveit

Fast skotið á Höllu Hrund – Líkt við froðusnakk sem hafi það eitt fram að bjóða að hafa búið í blokk og farið í sveit
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Tómasdóttir – fólkið velur forsetann, ekki fjölmiðlar eða skoðanakannanir

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Tómasdóttir – fólkið velur forsetann, ekki fjölmiðlar eða skoðanakannanir
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Tómasdóttir – þetta er kjarni The B Team

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Tómasdóttir – þetta er kjarni The B Team
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Kristrún greinir frá breytingum í reglum um framboðslista flokksins – Möguleiki á prófkjöri um efsta sæti og uppstillingu á þau næstu

Kristrún greinir frá breytingum í reglum um framboðslista flokksins – Möguleiki á prófkjöri um efsta sæti og uppstillingu á þau næstu
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Uppnám í breska Íhaldsflokknum – Þingmaður genginn í Verkamannaflokkinn sem hann segir verða að komast til valda til að bjarga heilbrigðiskerfinu

Uppnám í breska Íhaldsflokknum – Þingmaður genginn í Verkamannaflokkinn sem hann segir verða að komast til valda til að bjarga heilbrigðiskerfinu
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Snorri Jakobsson: Galið að Seðlabankinn hækki vexti og auki með því verðbólguna

Snorri Jakobsson: Galið að Seðlabankinn hækki vexti og auki með því verðbólguna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hneyksli í Finnlandi – Þingmaður handtekinn eftir skotárás

Hneyksli í Finnlandi – Þingmaður handtekinn eftir skotárás
Eyjan
Fyrir 1 viku

Biden grínaðist með aldursumræðuna um forsetaframbjóðendurna – „Ég er í framboði gegn sex ára“

Biden grínaðist með aldursumræðuna um forsetaframbjóðendurna – „Ég er í framboði gegn sex ára“