
Helgi Jóhannesson, fyrrverandi yfirlögfræðingur hjá Landsvirkjun, hefur sagt sig úr stjórn Ferðafélags Íslands. Frá þessu greinir Vísir. Þar kemur fram að Helgi hafi sagt sig úr félaginu í morgun og hefur nafn hans nú þegar verið fjarlægt af heimasíðu félagsins.
Stundin greindi frá því í morgun að Helgi hafi hætt störfum hjá Landsvirkjun nýlega í kjölfar þess að hann var formlega áminntur fyrir hegðun gagnvart samstarfskonu sem hann hafi meðal annars sagt vera með „lesbíuklippingu„, strokið á henni kinnina án hennar samþykkis og boðið henni að klípa sig í rassinn.
Vísir hefur eftir Önnu Dóru Sæþórsdóttur, forseta Ferðafélags Íslands, að málið sé ofsalega leiðinlegt fyrir alla aðila og að nýr stjórnarmaður verði kosinn á næsta aðalfundi félagsins á næsta ári.