fbpx
Fimmtudagur 16.maí 2024
Pressan

Telja sig hafa handsamað raðmorðingja

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 11. nóvember 2021 20:00

Perez Reed. Mynd:Lögreglan

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á föstudaginn var Perez Reed, 25 ára, handtekinn þegar hann steig út úr járnbrautarlest í bænum Independence í Missouri. Alríkislögreglan FBI telur að Reed hafi myrt sex manns frá því um miðjan september og þar til í lok október. Að auki hafi hann sært tvo.

CNN skýrir frá þessu. Morðin áttu sér að sögn stað í Missouri, þar sem Reed býr, og Kansas.

Reed var vopnaður skotvopni þegar hann var handtekinn. Passar stærð þess við skotin sem fundust í sumum fórnarlambanna.

Daily Beast segir að fyrsta fórnarlambið hafi verið 16 ára stúlka sem fannst myrt 13. september,  þremur dögum síðar var það 49 ára kona, þremur dögum eftir það 24 ára karlmaður og fertugur karlmaður 26. september.  1. nóvember  fundust 35 ára karlmaður og 25 ára kona myrt og þá komst lögreglan á slóð Reed.

Að sögn var það húðflúr af hálfu tungli á enni hans sem kom upp um hann en hægt var að greina það á upptökum úr eftirlitsmyndavél á síðasta morðvettvanginum. Einnig sýna rafræn spor að farsími hans var notaður á mörgum af morðvettvöngunum.

Daily Beast segir að við handtökuna hafi Reed verið í skóm sem lögreglan hafi tengt við suma morðvettvangana.

Hann neitar sök en hann hefur aðeins verið kærður fyrir tvö morð eins og er en unnið er að rannsókn á hinum morðunum og tengslum hans við þau.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Fólk áttar sig ekki á þessu – „Synir okkar eru bræður, frændur og tvíburar“

Fólk áttar sig ekki á þessu – „Synir okkar eru bræður, frændur og tvíburar“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fyrir einni milljón ára blönduðust tvær plöntur óvart og við njótum góðs af því

Fyrir einni milljón ára blönduðust tvær plöntur óvart og við njótum góðs af því
Pressan
Fyrir 4 dögum

Líkami þinn lyktar þegar hann er stressaður og hundar finna þessa lykt

Líkami þinn lyktar þegar hann er stressaður og hundar finna þessa lykt
Pressan
Fyrir 4 dögum

Heit umræða – Hvort þurfa konur eða karlar að sofa lengur?

Heit umræða – Hvort þurfa konur eða karlar að sofa lengur?
Pressan
Fyrir 5 dögum

Nokkurra vikna stúlka á gjörgæslu með kíghósta – „Þetta hefur verið algjör martröð“

Nokkurra vikna stúlka á gjörgæslu með kíghósta – „Þetta hefur verið algjör martröð“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Umdeilt viðtal við hina raunverulegu Mörthu kallað það siðlausasta fyrr og síðar – Meintur eltihrellir fær að segja sína hlið

Umdeilt viðtal við hina raunverulegu Mörthu kallað það siðlausasta fyrr og síðar – Meintur eltihrellir fær að segja sína hlið