Hrottaleg morð á vændiskonum í Róm hræða almenning – Illræmdur mafíósi handtekinn
PressanÍtölum er illa brugðið eftir hrottaleg morð á þremur vændiskonum í Róm. En mörgum hefur eflaust létt við þær fréttir að lögreglan sé búinn að handtaka manninn sem hún telur að hafi myrt konurnar. Um illræmdan mafíósa er að ræða. Lík kvennanna fundust á fimmtudaginn á tveimur stöðum ekki fjarri Péturskirkjunni. Fyrst fannst lík hinnar kólumbísku Marta Castano Torres. Lesa meira
Raðmorðinginn í Stockton „er í leiðangri“ en lögreglan veit ekki hvert markmiðið er
PressanFrá því í apríl á síðasta ári hafa sex karlar verið skotnir til bana í Stockton og Oakland í Kaliforníu og ein kona særð. Lögreglan telur að sami maðurinn hafi verið að verki í öllum málunum og segir að svo virðist sem raðmorðinginn „sé í leiðangri“. Hún segist hins vegar ekki vita hvert markmið leiðangursins er. Áður hafði komið Lesa meira
Raðmorðingi herjar hugsanlega á Stockton – Fimm karlar skotnir til bana
PressanLögreglan telur að raðmorðingi herji á borgina Stockton í Kaliforníu. Þar búa um 320.000 manns en borgin er suðvestan við Sacramento. Fimm karlar hafa verið skotnir til bana í borginni að undanförnu. Allir voru þeir einir á ferð að kvöldi eða síðla nætur þegar þeir voru skotnir. Þeir voru ekki rændir né beittir ofbeldi áður en þeir voru Lesa meira
Kyrktar og „pakkað saman“ – Morðinginn náðist 32 árum síðar
PressanFyrst voru þær keflaðar og andlit þeirra hulin. Síðan voru þær kyrktar og þeim „pakkað saman“. Svona enduðu líf fimm kvenna fyrir 32 árum í St. Louis í Bandaríkjunum. Þær urðu fórnarlömb blóðþyrsts raðmorðingja. Lögreglunni tókst nýlega að hafa uppi á honum. Í umfjöllun People Magazine kemur fram að það hafi verið lífsýni sem komu lögreglunni á spor morðingjans. Lesa meira
Lenti í klóm raðmorðingja – „Ég skil ekki að ég hafi lifað þetta af“
PressanFabienne Witherspoon, 19 ára, hafði ekki hugmynd um að hún hafði sloppið úr klóm skelfilegs raðmorðingja og hún vissi heldur ekki að hún hafði slasað hann. Það eina sem hún vissi var að hún hafði reynt að bjarga sér og lagt allt að veði. Það var ekki fyrr en löngu síðar sem hún komst að Lesa meira
Telja sig hafa handsamað raðmorðingja
PressanÁ föstudaginn var Perez Reed, 25 ára, handtekinn þegar hann steig út úr járnbrautarlest í bænum Independence í Missouri. Alríkislögreglan FBI telur að Reed hafi myrt sex manns frá því um miðjan september og þar til í lok október. Að auki hafi hann sært tvo. CNN skýrir frá þessu. Morðin áttu sér að sögn stað í Missouri, þar sem Reed býr, og Kansas. Reed var vopnaður skotvopni þegar hann Lesa meira
Loksins komst upp um raðmorðingjann – Sagðist hafa haft „hvatir“
PressanSvo virðist sem frönsku lögreglunni hafi loksins tekist að leysa fjögur morðmál og sex nauðganir eftir að hafa reynt að hafa uppi á gerandanum í 35 ár. Franska lögreglan tilkynnti fyrir helgi að hún væri nú hætt leit að raðmorðingja, sem gekk undir heitinu „Le Grêle“ (Maðurinn með örin) eftir að DNA-rannsókn leiddi í ljós hver Lesa meira
Leystu rúmlega 20 ára gamlar morðgátur – Þrjár konur voru myrtar
PressanLögreglan í Flórída leysti nýlega þrjú rúmlega 20 ára gömul morðmál. Morðinginn er látinn en hann fórst í flugslysi árið 2005. Hann hét Roberto Fernandes og telur lögreglan að konurnar þrjár hafi ekki verið einu fórnarlömb hans, hann hafi verið nokkuð afkastamikill raðmorðingi. Sky News segir að eitt fórnarlamba hans hafi verið Kimberly Dietz–Livesey en lík hennar fannst í tösku í vegkanti nærri Fort Lauderdale í Lesa meira
Hryllingshótelið – Gestirnir sluppu ekki lifandi út
PressanHerman Webster Mudgett fæddist 1861 í New Hampshire í Bandaríkjunum. Á yngri árum sínum var hann að sögn heillaður af beinagrindum og ungur að árum var hann orðinn heillaður af dauðanum. Þessi áhugi hans varð hugsanlega til þess að hann lagði læknisfræði fyrir sig. Þegar hann útskrifaðist úr skóla 16 ára að aldri breytti hann Lesa meira
Gerðu skelfilega uppgötvun í hryllingshúsinu – Nú streymir fólk þangað í leit að svörum
PressanFyrir sjö árum sendi Jessenia Elizabeth Francias 16 ára son sinn, Luis Fernando, til að kaupa hádegismat handa þeim. Hann skilaði sér aldrei heim og í þessi sjö ár hefur Jessenia leitað án afláts að honum. Nýlega lagði hún leið sína að „hryllingshúsinu“ í bænum Chalchuapa í El Salvador í von um að fá svör við hvað varð um Luis. The Guardian skýrir frá þessu. Í Lesa meira