fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Vann virt barnabókaverðlaun í Bretlandi: „Ég var eiginlega búin að gleyma þessu“

Björn Þorfinnsson
Laugardaginn 6. nóvember 2021 16:33

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í gær var tilkynnt um að myndskreytirinn  Hrefna Bragadóttir hefði unnið virt barnabókaverðlaun í Bretlandi ásamt hinum þaulreynda barnabókahöfundi Jeanne Willis. Þær stöllur hlutu verðlaunin, sem nefnast The Sheffield Children Books Award fyrir bókina „Don´t go there.“ sem gefin er út af Andersen Press. Bókin hlaut verðlaun í barnaflokki fyrir 3- 5 ára börn (e. Toddler) fyrir árið 2020 en verðlaunahátíðinni var frestað í fyrra  útaf kórónuveirufaraldrinum.

„Ég var eiginlega búin að gleyma þessu,“ segir kímin Hrefna í samtali við DV. Hún er búsett  í Bretlandi og lauk MA-námi í barna­bóka­myndskreyt­ingu í Cambridge School of Art árið 2014. Hún hefur myndskreytt fjölmargar bækur og ýmis önnur verkefni eins og  hreyfi­mynda­gerð fyr­ir sjón­varps­stöðvarn­ar BBC og Nickelodeon. Að auki hefur hún gefið út tvær barnabækur sjálf sem þýddar hafa verið á fjölmörg tungumál og gefnar út víða um heim.

Hrefna vinnur í fullu starfi sem kennari á Animation-braut Arts University í Bournemouth þar sem hún stundaði sjálf nám á árum áður. „Mér var svo boðið fullt starf í kennslunni i janúar og kenni þar núna Animation, Character Design og grunn teikningu á fyrsta ári,“ segir Hrefna.

Þrátt fyrir annir við kennslu og fjölskyldulíf þá vinnur hún áfram í margskonar verkefnum. „Ég er ávallt að vinna í bókahugmyndum en þær malla á lágum hita og mér finnts mikilvægt að leyfa þeim að vaxa eðlilega í stað þess að flýta þessari viðkvæmu sköpunar vinnu. Hugmyndirnar mínar koma i bylgjum en á meðan verð eg að gera eitthvað annað sem færir mér innblástur. Mér finnst mjög gefandi að kenna mitt áhugasvið því nemarnir kenna mér nefnilega ýmislegt til baka og ég er alltaf að læra eitthvað nýtt um fólk, listina og sjálfa mig. Sá lærdómur hættir aldrei.“

Að sögn Hrefnu var hún afar ánægð með samstarfið við Jeanne Willis sem er afar virtur og margverðlaunaðurbarnabókahöfundur ytra. Hún hefur skrifað  meira en áttatíu titla, þar á meðal barnabækur, skáldsögur og sjónvarpshandrit.

Jeanne Willis

„Það var mikill heiður að fá að myndskreyta þessa skemmtilegu sögu. Sagan er mjög fyndin og fjallar um stelpu sem tekur að sér lítinn Marsbúa en uppgötvar að hann kann ekki að nota klósettið,“ segir Hrefna.

Hún segir að tilkynningin um verðlaunin hafi komið sér í opna skjöldu og hún hafi ekki leitt hugann að því  hvaða þýðingu slík verðlaun hafa. „Vonandi verður þessi viðurkenning til þess að koma bókina enn frekar á framfæri, til dæmis til bókasafna, svo að enn fleiri lesendur fái notið hennar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Pink sögð skilin við eiginmanninn til 20 ára og bregst reið við – „Mynduð þið vilja segja börnunum okkar frá þessu?

Pink sögð skilin við eiginmanninn til 20 ára og bregst reið við – „Mynduð þið vilja segja börnunum okkar frá þessu?
Fókus
Fyrir 3 dögum

Dómari skipaði leikaranum að fara í meðferð eftir nýjasta uppátæki hans

Dómari skipaði leikaranum að fara í meðferð eftir nýjasta uppátæki hans
Fókus
Fyrir 3 dögum

Breski stórleikarinn sýndi sitt rétta eðli þegar ungur meðleikari varð fyrir áfalli

Breski stórleikarinn sýndi sitt rétta eðli þegar ungur meðleikari varð fyrir áfalli
Fókus
Fyrir 3 dögum

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify
Fókus
Fyrir 5 dögum

Raunveruleikastjarnan kveður niður þrálátan orðróm um kynhneigð eiginmannsins

Raunveruleikastjarnan kveður niður þrálátan orðróm um kynhneigð eiginmannsins
Fókus
Fyrir 5 dögum

Halle Berry opinberar það sem hún gerir ekki lengur í kynlífi

Halle Berry opinberar það sem hún gerir ekki lengur í kynlífi
Fókus
Fyrir 5 dögum

Prófessor í HÍ líkir áhyggjum af slaufun við siðfár

Prófessor í HÍ líkir áhyggjum af slaufun við siðfár