fbpx
Mánudagur 11.maí 2026
Fréttir

Stunginn í Miðborginni

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 5. nóvember 2021 05:22

Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Frekar rólegt var hjá lögreglunni á kvöld- og næturvaktinni en þó var maður stunginn í Miðborginni. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að tilkynnt hafi verið um slagsmál í Miðborginni. Allir málsaðilar hafi verið farnir af vettvangi þegar lögreglan kom en nokkru seinna var tilkynnt um aðila sem hafði verið stunginn í Miðborginni. Það reyndist vera árásarþolinn frá því í fyrrgreindum slagsmálum. Hann var fluttur á sjúkrahús en er ekki talinn alvarlega slasaður. Málið er í rannsókn.

Einn var vistaður í fangaklefa en hann var í annarlegu ástandi og er grunaður um skemmdarverk.

Fjórir ökumenn voru handteknir grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Pinnahælar reyndust leigjendum dýrkeyptir

Pinnahælar reyndust leigjendum dýrkeyptir
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Heiða Björg keypti áfengi á kostnað borgarinnar

Heiða Björg keypti áfengi á kostnað borgarinnar