fbpx
Fimmtudagur 02.október 2025
Eyjan

Bjarni telur að ný ríkisstjórn líti dagsins ljós í næstu viku

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 3. nóvember 2021 07:59

Bjarni Benediktsson. Mynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, telur að ný ríkisstjórn líti dagsins ljós i næstu viku. Hann segir að legið verði yfir stjórnarmynduninni um helgina og að þótt tíminn sé naumur muni ný stjórn setja mark sitt á fjárlagafrumvarp næsta ár.

Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag. Haft er eftir Bjarna að nýta þurfi helgina vel og dagana þar á eftir og þá trúi hann að stjórnarmynduninni fari að ljúka. Hann sagðist telja að hægt verði að mynda stjórn i næstu viku, viðræðum hafi miðað vel þrátt fyrir hlé í þessari viku vegna loftslagsráðstefnunnar og funda Norðurlandaráðs.

Formenn flokkanna hafa séð um stjórnarmyndunarviðræðurnar en aðspurður sagði Bjarni að aðstoðarfólk hafi verið með í verkefnum tengdum viðræðunum.

Hann sagði að reynsla sýni að hægt sé að ljúka fjárlagagerð með stuttum fyrirvara eftir myndun ríkisstjórnar og benti á að fyrir fjórum árum hafi ríkisstjórn verið mynduð 30. nóvember  og fjárlagafrumvarpið hafi verið lagt fram 14. desember en Alþingi verður ekki sett nema fjármálaráðherra sé tilbúinn til að leggja fram fjárlagafrumvarp. „Við erum auðvitað með ákveðinn grunn í fjármálaáætlun sem fjárlög næsta árs byggja á,“ sagði Bjarni og bætti viðað fyrir liggi að stórum hluta áætlun um tekjur á grundvelli fyrirliggjandi laga og einnig liggi fyrir útgjaldaspá byggð á verðlagsþróun. „Auðvitað eru möguleikar nýrrar stjórnar til að setja mark sitt á þetta fjárlagafrumvarp takmarkaðir en það þýðir ekki að við ætlum ekki að gera það. Við munum auðvitað setja mark okkar á það og taka ábyrgð á því,“ sagði hann einnig.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Svarthöfði skrifar: Þykir engum vænt um Stefán Einar og Morgunblaðið?

Svarthöfði skrifar: Þykir engum vænt um Stefán Einar og Morgunblaðið?
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Daði Már Kristófersson: Hvatinn til að gera betur er veikur hjá hinu opinbera

Daði Már Kristófersson: Hvatinn til að gera betur er veikur hjá hinu opinbera
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að Guðmundur í Brim og Binni blanki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að Guðmundur í Brim og Binni blanki
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Frelsi er sumsé fyrir þá heppnu og útvöldu!

Sigmundur Ernir skrifar: Frelsi er sumsé fyrir þá heppnu og útvöldu!
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Tíðindalaus uppskeruhátíð eða hvað

Þorsteinn Pálsson skrifar: Tíðindalaus uppskeruhátíð eða hvað
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Leiðir fyrrum formaður Stúdentaráðs lista Viðreisnar í Reykjavík?

Orðið á götunni: Leiðir fyrrum formaður Stúdentaráðs lista Viðreisnar í Reykjavík?