fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
433Sport

El Clásico: Real Madrid hafði betur eftir spennandi lokamínútur – Slæmt gengi Barcelona heldur áfram

Helga Jónsdóttir
Sunnudaginn 24. október 2021 16:16

David Alaba / Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stórleiknum á Spáni, El Clásico, var að ljúka rétt í þessu með 1-2 sigri Real Madrid.

Real Madrid var sterkara liðið í fyrri hálfleik, voru hættulegir í skyndisóknum og vörðust vel. David Alaba braut ísinn á 33. mínútu leiksins með frábæru marki. Gestirnir leiddu 0-1 þegar flautað var til hálfleiks.

Í seinni hálfleik var jafnræði á milli liðanna, bæði lið lögðu áherslu á varnarleikinn og lítið var um opin færi þar til í uppbótartíma er Lucas Vázquez tvöfaldaði forystu gestanna og stuttu síðar minnkaði Aguero muninn. Þar við sat og 1-2 sigur Real Madrid staðreynd.

Real Madrid er á toppi deildarinnar með 20 stig, líkt og Sevilla og Real Sociedad en betri markatölu. Barcelona er í 8. sæti deildarinnar með 15 stig.

Barcelona 1 – 2 Real Madrid
0-1 David Alaba (´32)
0-2 Lucas Vázquez (´90+4)
1-2 Aguero (´97)

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Sesko lofsyngur Casemiro eftir sigur kvöldsins – „Hann er vinnuvél, hættir aldrei“

Sesko lofsyngur Casemiro eftir sigur kvöldsins – „Hann er vinnuvél, hættir aldrei“
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Besta deildin: Valur sótti sterkan sigur í Garðabæ – Breiðablik og Víkingur með öfluga sigra

Besta deildin: Valur sótti sterkan sigur í Garðabæ – Breiðablik og Víkingur með öfluga sigra
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Guardiola lagði inn gott orð

Guardiola lagði inn gott orð
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Skjót viðbrögð hjá lækni björguðu lífi hennar – Missti fóstur og var með svæsna blóðeitrun

Skjót viðbrögð hjá lækni björguðu lífi hennar – Missti fóstur og var með svæsna blóðeitrun
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Myndband Sindra vekur athygli: Illa farinn eftir grófa tæklingu – Dómarinn gerði ekki neitt

Myndband Sindra vekur athygli: Illa farinn eftir grófa tæklingu – Dómarinn gerði ekki neitt
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Fyrrum leikmaður Manchester City á óskalista Arteta

Fyrrum leikmaður Manchester City á óskalista Arteta