fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Jóhannes Karl á Tenerife þegar stutt er í stóru stundina – Haugur af peningum í húfi

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 7. október 2021 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari ÍA er í fríi á Tenerife tíu dögum áður en liðið leikur til bikarúrslita. Frá þessu var sagt í Þungavigtinni í dag.

Samkvæmt heimildum 433.is er Jóhannes væntanlegur til landsins fjórum dögum fyrir úrslitaleikinn gegn Víkingum sem fram fer aðra helgi.

„Ég er með gárunga út um allan heim eins og þið vitið. Mínir menn sáu þjálfara Skagamanna sóla sig á Tenerife í gær. Það er verið að hlaða batteríin fyrir bikarúrslitaleikinn,“ sagði Kristján Óli í Þungavigtinni.

„Hann er þar og annar af starfsmönnum knattspyrnudeildar ÍA er líka í fríi. Það greinilega nóg til eftir að Ísak var seldur. Þeir ætla að vera klárir í bikarleikinn. Jói mætir heltanaður á hliðarlínuna á Laugardalsvelli eftir níu daga,“ sagði Kristján Óli.

Fríið kemur á tímapunkti sem vekur athygli enda eru Skagamenn í dauðafæri á að sækja sér Evrópusæti og fullt af peningum.

„Ég get lofað þér því að Víkingar eru að æfa og Skagamenn eru að æfa líka en bara undir aðstoðarþjálfara og með fjóra menn í 21 árs liðs verkefni. Þetta er ákvörðun sem formaðurinn stendur og fellur með. Mér finnst þetta skrítið og hefði bara viljað frestað ferðinni,“ sagði Kristján Óli.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Liverpool setti met í gær – Vantar aðeins tvo staði upp á

Liverpool setti met í gær – Vantar aðeins tvo staði upp á
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

De Gea aftur til Englands?

De Gea aftur til Englands?
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Ofurtölvan stokkar spilin eftir viðburðaríka helgi – Þungt fyrir bæði liðin í norðurhluta London

Ofurtölvan stokkar spilin eftir viðburðaríka helgi – Þungt fyrir bæði liðin í norðurhluta London
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Þurftu að slökkva á hljóðnemanum í viðtali við Haaland í gær – Myndband

Þurftu að slökkva á hljóðnemanum í viðtali við Haaland í gær – Myndband
433Sport
Fyrir 2 dögum

Góð frammistaða Íslands gegn Evrópumeisturunum dugði ekki til

Góð frammistaða Íslands gegn Evrópumeisturunum dugði ekki til
433Sport
Fyrir 2 dögum

„Ég er auðvitað mjög náin henni og þetta er einhver hógværasta manneskja sem ég hef kynnst“

„Ég er auðvitað mjög náin henni og þetta er einhver hógværasta manneskja sem ég hef kynnst“