Athafnaparið Anton Kristinn Þórarinsson og Ellen Erla Egilsdóttir hafa slitið samvistum og búa nú sitt í hvoru lagi. Ellen Erla undirstrikaði sambandsslitin með því að skrá sig sem einhleypa á dögunum.
Mikið hefur gengið á lífi parsins fyrrverandi undanfarið. Fyrr í mánuðinum mættu sköthjúin saman, sem eiga tvö börn saman, og gáfu skýrslur fyrir dómi í réttarhöldunum vegna Rauðagerðismorðsins en Anton Kristinn hafði um tíma réttarstöðu grunaðs manns í málinu.
Skýrslutakan yfir Ellen Erlu var sérstaklega tilfinningaþrungin en þar sagði hún að málið hefði sundrað fjölskyldu sinni og ekkert væri nú eins og það hafi áður verið. Var henni mikið niðri fyrir þegar hún lýsti stöðu mála og bauð dómari málsins henni að gera stutt hlé á máli sínu á meðan hún jafnaði sig.