fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Pressan

Prestur stal peningum frá kirkjunni og notaði til að kaupa fíkniefni og halda kynlífsorgíur

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 29. september 2021 14:00

Francesco Spagnesi

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ítalski presturinn Francesco Spagnesi, sem er prestur í kirkju í Prato nærri Florens, var nýlega handtekinn grunaður um fjárdrátt. Hann er grunaður um að hafa stolið sem nemur rúmlega 15 milljónum íslenskra króna af bankareikningi kirkjunnar. Peningana notaði hann meðal annars til að kaupa fíkniefni og halda kynlífsorgíur.

Á síðustu tveimur árum er hann sagður hafa haldið villtar kynlífsorgíur fyrir samkynhneigða karlmenn. Lögreglan er nú að yfirheyra mörg hundruð karla sem eru taldir hafa sótt þessar orgíur.

Spagnesi er einnig grunaður um að hafa keypt mikið magn af kókaíni og GHB, sem er oft kallað nauðgunarlyfið“, og selt áfram.

Hann er sagður hafa haldið kynlífsorgíur einu sinni í viku og hafi 20-30 karlar tekið þátt í þeim hverju sinni.

Það var bókari kirkjunnar sem rak augun í að peninga vantaði í kassann og hófst þá rannsókn og lá slóðin til Spagnesi. Í fyrstu sagði hann að peningarnir hefur runnið til bágstaddra fjölskyldna en staðreyndin er að þær fengu ekki neitt af þessum peningum. Spagnesi var því kominn út í horn og varð að lokum að játa að hann hefði notað peningana í eigin þágu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 10 klukkutímum

Barnamúmían dularfulla – Fundu dánarorsökina

Barnamúmían dularfulla – Fundu dánarorsökina
Pressan
Fyrir 11 klukkutímum

Aukin glæpatíðni á Tenerife

Aukin glæpatíðni á Tenerife
Pressan
Í gær

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin
Pressan
Í gær

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“
Pressan
Í gær

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig
Pressan
Í gær

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Geimfarar yfirgáfu Alþjóðlegu geimstöðina vegna súrefnisleka

Geimfarar yfirgáfu Alþjóðlegu geimstöðina vegna súrefnisleka
Pressan
Fyrir 2 dögum

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman