fbpx
Þriðjudagur 08.júlí 2025
433Sport

Undankeppni HM: Strákarnir sýndu mikinn karakter í lokin og sóttu stig – Frammistaðan stóran hluta leiks afar slök

Helgi Fannar Sigurðsson
Sunnudaginn 5. september 2021 17:53

Mynd/Anton Brink

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ísland gerði endurkomujanftefli gegn Norður-Makedóníu í undankeppni Heimsmeistaramótsins í dag. Leikið var á Laugardalsvelli.

Strax á fyrstu mínútu bjó Birkir Bjarnason til ágætis færi fyrir Albert Guðmundsson sem skaut framhjá úr nokkuð þröngu færi. Þetta var þó í raun það eina jákvæða í þessum fyrri hálfleik.

Darko Velkoski kom gestunum yfir með skallamarki eftir hornspyrnu á 12. mínútu. Hann komst í boltann á undan Viðari Erni Kjartanssyni og skallaði hann undir Rúnar Alex Rúnarsson. Varnarleikur Íslands ekki til fyrirmyndar þarna.

Ísland sá ekki til sólar fram að hálfleik, lítið sem ekkert gekk upp. Norður-Makedónar voru einfaldlega miklu betri. Staðan í hálfleik var 0-1.

Svipað var uppi á teningnum í byrjun seinni hálfleiks. Ezgjan Alioski kom gestunum í 0-2 á 55. mínútu. Hann fékk þá að rekja boltann óáreittur dágóða vegalengd og koma boltanum í netið frá vítateigslínu.

Tíu mínútum síðar skallaði Kári Árnason boltann í netið en var flaggaður rangstæður.

Ísland minnkaði muninn á 78. mínútu. Markið skoraði Brynjar Ingi Bjarnason eftir að hafa fylgt eftir aukaspyrnu Alberts Guðmundssonar.

Á 84. mínútu jafnaði Andri Lucas Guðjohnsen. Albert lagði boltann fyrir markið á Andra sem tók flottan snúning og skoraði. Mögnuð endurkoma Íslands, nokkrum mínútum áður benti ekki neitt til annars en að Norður-Makedónar færu með öll stigin heim.

Ísland var líklegri aðilinn til að stela sigrinum í lokin. Brynjar Ingi þurfti þó einu sinni að bjarga á línu. Allt kom þó fyrir ekki. Niðurstaðan 2-2. Ísland er með 4 stig eftir fimm leiki.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Þorsteinn tjáir sig um ummæli Jóns Dags – „Hann er sonur minn, auðvitað ertu að verja fjölskylduna þína“

Þorsteinn tjáir sig um ummæli Jóns Dags – „Hann er sonur minn, auðvitað ertu að verja fjölskylduna þína“
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Bruno og Dalot fá lengra frí til að ná áttum eftir helgina

Bruno og Dalot fá lengra frí til að ná áttum eftir helgina