fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Pressan

Neitar bólusettu fólki um gistingu – „Ég þekki fólk sem finnur fyrir aukaverkunum við að vera of nálægt bólusettu fólki“

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 24. ágúst 2021 05:45

Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég þekki fólk sem finnur fyrir aukaverkunum við að vera of nálægt bólusettu fólki,“ segir Mianne Søndergaard sem rekur lítinn gististað á Suður-Jótlandi í Danmörku. Hún meinar bólusettu fólki að gista hjá sér.

JydskeVestkysten skýrði frá þessu nýlega. Í samtali við BT sagðist hún meina bólusettu fólki að gista á gistiheimilinu þar sem hún væri sjálf slæm til heilsunnar og það að leyfa bólusettu fólki að gista kalli á enn meiri þrif en ella og það sé henni erfitt. En það er ekki eina ástæðan því hún er einarður andstæðingur bólusetninga gegn kórónuveirunni og segir að ekki eigi að kalla bóluefnið bóluefni.

„Ég þekki fólk sem finnur fyrir aukaverkunum við að vera of nálægt bólusettu fólki og ég myndi ekki njóta þess að byrja skyndilega aftur á blæðingum, að fá hormónatruflanir eða blóðtappa af því að ég fæ spike prótín,“ sagði hún einnig.

Hún telur að bóluefnin hafi ekki verið samþykkt til notkunar, hafi aðeins fengið neyðarheimild. Hún segist aldrei hafa farið í skimun og noti heldur ekki handspritt eins og yfirvöld hvetja fólk til. „Ég er efins og ég vil ekki láta mér líða verr en í dag,“ sagði hún en hún glímir við mígreni, bakveiki og fleiri veikindi.

Hún hefur hætt viðskiptum við bókunarsíðuna Booking.com og það þarf kannski ekki að koma á óvart að hún hefur ekki fengið einn einasta gest til sín í eitt ár. Hún sagði að þar sem maðurinn hennar sé með góð laun þá komist þau af þrátt fyrir að hún hafi engar tekjur af gistiheimilinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

„Ég sagði honum að hann væri í röngu gati“ – „Síðan komst ég að ástæðunni“

„Ég sagði honum að hann væri í röngu gati“ – „Síðan komst ég að ástæðunni“
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Konur segja þessa spurningu karla í rúminu vera „fullnægingarmorðingja“

Konur segja þessa spurningu karla í rúminu vera „fullnægingarmorðingja“
Pressan
Í gær

Sænskur einfari handtekinn 21 ári eftir tvö morð

Sænskur einfari handtekinn 21 ári eftir tvö morð
Pressan
Í gær

Dýr mistök á opnunardegi pitsastaðar – Greiddu viðskiptavinum fyrir að kaupa pítsu

Dýr mistök á opnunardegi pitsastaðar – Greiddu viðskiptavinum fyrir að kaupa pítsu
Pressan
Í gær

Kviðdómendur grétu við upptöku af síðustu augnablikum sjö ára stúlku

Kviðdómendur grétu við upptöku af síðustu augnablikum sjö ára stúlku
Pressan
Í gær

Söngvarinn handtekinn vegna rotnandi líks táningsstúlku sem fannst í Teslu-bifreið hans

Söngvarinn handtekinn vegna rotnandi líks táningsstúlku sem fannst í Teslu-bifreið hans
Pressan
Fyrir 2 dögum

Draumaferð hjónanna til Maldíveyja breyttist í algjöra martröð

Draumaferð hjónanna til Maldíveyja breyttist í algjöra martröð
Pressan
Fyrir 3 dögum

Bandaríkjamenn sagðir hafna tillögu Rússlands um lausn Íransstríðsins

Bandaríkjamenn sagðir hafna tillögu Rússlands um lausn Íransstríðsins