

Björgólfur Thor Björgólfsson er á meðal gesta á leik Englands og Danmerkur sem nú fer fram á Wembley, um er að ræða leik í undanúrslitum á Evrópumótinu.
Björgólfur er þar staddur með sínum besta vini David Beckham en þeir félagar hafa í gegnum árin verið mikið saman. Beckham hefur ítrekað komið til Íslands og farið í veiðiferðir með Björgólfi.
Á Wembley í kvöld er einnig Dave Grutman sem er frægur í Bandaríkjunum, er Grutman frægastur fyrir að eiga næturklúbbinn LIV á Miami en að auki á hann fjöldann af skemmti og veitingastöðum.
Kvikmyndaframleiðandinn Guy Ritchie er svo að sjálfsögðu með en hann er iðulega með í för þegar Beckham og Björgólfur bralla eitthvað saman.
Grutman birti mynd á Instagram í kvöld sem má sjá hér að neðan.