fbpx
Miðvikudagur 06.maí 2026
433Sport

Stóru orðin eru ekki spöruð – „Við borðum ykkur í morgunmat“ – „Hann er ekki að koma heim. Við erum að koma“

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 7. júlí 2021 07:09

Auglýsingin frá B.T. sem birtist í The Sun.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mörgum lesendum danska dagblaðsins B.T. brá eflaust í brún í morgun þegar þeir komu að síðu 5 í blaðinu. Þar blasti við mynd af brauðsneið með tveimur beikonsneiðum á og mynduðu þær kross, enska fánann. Að auki var tómatsósa ofan á þeim. Undir þessu stóð: „Við borðum ykkur í morgunmat.“

Um er að ræða heilsíðuauglýsingu frá breska götublaðinu The Sun í tilefni af leik Dana og Englendinga í undanúrslitum EM á Wembley í kvöld.

Auglýsing The Sun sem birtist í B.T. í morgun.

B.T. svaraði þessari „árás“ The Sun með heilsíðuauglýsingu í The Sun í dag. Á henni sjást vígreifir víkingar undir danska fánanum og textanum: „Hann er ekki að koma heim. Við erum að koma heim.“ Er þar vísað til lagsins „Football‘s Coming Home,“ sem var hið opinbera lag enska knattspyrnulandsliðsins 1996 þegar úrslitakeppnin fór fram þar í landi, heldur séu danskir víkingar að koma heim en eins og kunnugt er herjuðu norrænir víkingar mikið á England á öldum áður.

Allt er þetta gert í góðlátlegu gríni en hugmyndin kom frá B.T. sem spurði The Sun hvort ekki væri rétt að skiptast á heilsíðuauglýsingum í dag í tilefni af leik kvöldsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Arsenal í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í fyrsta sinn í 20 ár

Arsenal í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í fyrsta sinn í 20 ár
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Afhjúpaði hvernig aðdragandinn að framhjáhaldinu með Beckham var – „Ég fann að ég var að vera óþekk“

Afhjúpaði hvernig aðdragandinn að framhjáhaldinu með Beckham var – „Ég fann að ég var að vera óþekk“
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Óvænt nafn orðað við United til að taka við stöðu Casemiro

Óvænt nafn orðað við United til að taka við stöðu Casemiro
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Verður þetta byrjunarlið Tottenham á næstu leiktíð ef liðið heldur sér í deildinni?

Verður þetta byrjunarlið Tottenham á næstu leiktíð ef liðið heldur sér í deildinni?
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Ráðleggur Carrick að selja þennan leikmann í sumar – Vill fjölhæfari leikmann í staðin

Ráðleggur Carrick að selja þennan leikmann í sumar – Vill fjölhæfari leikmann í staðin
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Urðar yfir Chelsea eftir gærdaginn

Urðar yfir Chelsea eftir gærdaginn
433Sport
Í gær

Eitt nafn var á blaði hjá United sem er úr sögunni – Carrick tekur þátt í fundum um framtíðina

Eitt nafn var á blaði hjá United sem er úr sögunni – Carrick tekur þátt í fundum um framtíðina
433Sport
Í gær

Framtíðin er ekki í hans höndum – Hún er í höndum eiginkonu hans og hvað Guð segir henni

Framtíðin er ekki í hans höndum – Hún er í höndum eiginkonu hans og hvað Guð segir henni