fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Kaldar kveðjur Viðreisnar til stofnandans – „Af augljósum ástæðum afþakkaði ég það“

Erla Dóra Magnúsdóttir
Föstudaginn 21. maí 2021 15:15

Benedikt Jóhannesson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Benedikt Jóhannesson einn af stofnendum stjórnmálaflokksins Viðreisnar tilkynnti í haust að hann gæfi kost á sér í oddvitasæti á einhverjum lista flokksins á Suðvesturhorninu. Flokkurinn ákvað að styðjast við uppstillinganefnd við val inn á framboðslista og hafði formaður nefndarinnar samband við Benedikt síðastliðinn þriðjudag.

„Þorsteinn Pálsson, formaður uppstillingarnefndar, bað mig að hitta sig síðastliðinn þriðjudag. Á fundi okkar sagði hann mér, að það væri einróma niðurstaða nefndarinnar að bjóða mér neðsta sæti listans. Af augljósum ástæðum afþakkaði ég það.“

Benedikt segir að fljótlega eftir að hann gaf kost á sér hafi orðið ljóst að fleiri höfðu hug á því að hreppa oddvitasæti en bara hann. Benedikt vildi að farið yrði í prófkjör sem væri „opið og gagnsætt ferli,“ þegar margir hafa gefið kost á sér í tiltekið sæti. Hins vegar hafi verið ákveðið að notast fremur við uppstillingarnefnd sem hafi svo ekki viljað bjóða Benedikt hærra sæti en það allra neðsta.

Benedikt ætlar þó ekki að hætta í pólitík þó hann hafi fengið þessar köldu kveðjur.

„Þar með er útséð um að ég verði í framboði fyrir Viðreisn að þessu sinni, en ég held áfram í pólitík og styð nú sem fyrr grunnstefnu Viðreisnar, enda hygg ég að ég hafi skrifað megnið af henni. Sjaldan hefur verið brýnni þörf fyrir einbeitta, frjálslynda rödd í samfélaginu og ég mun ekki láta mitt eftir liggja.“

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein
Eyjan
Fyrir 1 viku

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins