fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Eyjan

Jóhannes segir að lokun Schengen-landamæranna geti orðið afdrifarík fyrir ferðaþjónustuna

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 15. mars 2021 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það getur haft mikil og neikvæð áhrif á ferðaþjónustuna hér á landi ef landamæri Schengen-ríkjanna verða áfram lokuð. Samkvæmt núgildandi reglum fá bólusettir ferðamenn frá þriðja lands ríkjum, það er ríkjum utan Schengen, ekki að koma til landsins. Skiptir þá engu þótt ferðamennirnir geti framvísað bólusetningarvottorði eða mótefnavottorði.

Morgunblaðið skýrir frá þessu í dag og hefur eftir Jóhannesi Þór Skúlasyni, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar. Haft er eftir honum að hér á landi sé pólitískur vilji til að breyta þessum reglum þannig að bólusettir ferðamenn og þeir sem eru með mótefni geti komið til landsins.

Það dugir þó ekki til að hans sögn því ákvörðunin heyrir undir ráðherraráð Evrópusambandsins. „Þetta er mjög pólitískt mál á milli Bandaríkjanna og Evrópusambandsins. Schengen-lokunin var sett á í kjölfar ákvörðunar Bandaríkjastjórnar um að loka á flug frá Evrópu,“ er haft eftir Jóhannesi sem sagði einnig að vonast hafi verið til að samskiptin myndu batna eftir ríkisstjórnarskiptin í Bandaríkjunum en það hafi ekki gerst enn, stjórn Biden sé hörð á því að halda þessari lokun.

Hann sagði einnig að dómsmálaráðherra hafi lagt til við ráðherraráð ESB að ytri landamæri Schengen yrðu færð til meginlandsins þannig að hægt væri að taka við ferðamönnum hér á landi án þess að þeir kæmust inn í önnur Schengen-ríki. Ráðið tók að hans sögn ekki vel í þessa tillögu og því hafi íslensk stjórnvöld ákveðið að fylgja tilmælum ESB.

„En þetta er auðvitað afar slæmt fyrir okkur, sérstaklega inn í haustið, því þá myndu Bandaríkjamenn, Bretar og Kínverjar alla jafna koma til landsins. Það eru okkar þrír helstu haust- og vetrarhópar og eins og staðan er í dag kemst enginn þeirra til landsins,“ er haft eftir honum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir