fbpx
Mánudagur 11.maí 2026
433Sport

Söguleg stund á Englandi – Rúnar sá fyrsti í deild þeirra bestu

Alexander Máni Curtis
Þriðjudaginn 2. febrúar 2021 20:02

Rúnar Alex Rúnarsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rúnar Alex Rúnarsson spilaði sinn fyrsta deildarleik fyrir Arsenal í 2-1 tapi gegn Wolves í dag en leiknum lauk rétt í þessu.

Wolves tók á móti Arsenal á Molineux Stadium og komst Arsenal yfir á 32. mínútu eftir glæsilegan einleik Nicolas Pepe og allt stefndi að Arsenal færi með eins marks forystu í fyrri hálfleik en þá gerðist David Luiz varnarmaður Arsenal brotlegur í eigin teig og var rekinn af velli og víti dæmt sem Rúben Neves nýtti og  jafnaði metin á fimmtu mínútu uppbótartíma.

João Moutinho kom svo Wolves yfir með mögnuðu langskoti á 49. mínútu og staðan orðin 2-1 Wolves í hag. Bernd Leno gerði sig svo sekann um að handleika boltann fyrir utan vítateig var rekinn af velli og Arsenal komnir niður í níu menn.

Rúnar Alex Rúnarsson kom inn í stað Thomas Partey til að verja mark Arsenal og er það söguleg stund fyrir Íslendinga þar sem hann er fyrsti íslenski markmaðurinn til þess að spila í ensku úrvalsdeildinni.

Rúnar Alex varði markið vel og hélt hreinu á meðan hann stóð vörð um mark Arsenal en mikil umræða var um hvort að leikmaðurinn myndi fara á lán í janúar til þess að fá reynslu.

Svekkjandi tap í fyrsta leikur Rúnars Alex endaði 2-1 fyrir Wolves en þetta var fyrsti sigur Wolves á árinu en við óskum Rúnari og Íslendingum til hamingju með áfangann.

 

Önnur úrslit

Sheffield United – West Brom, Sheffield United vann sinn þriðja leik á tímabilinu og kom hann gegn West Brom, Sheffiled situr enn í síðasti sæti deildarinnar engu að síður, 10 stigum frá öruggu sæti.

Matt Phillips(01, 41.Mín)

Jayden Bogle(11, 56.Mín)

Billy Sharp(21, 73.Mín)
Lokað er fyrir athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Enginn grætt meira á VAR en Liverpool – Svona liti taflan út án tækninnar

Enginn grætt meira á VAR en Liverpool – Svona liti taflan út án tækninnar
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Liverpool gæti fundið arftaka Salah í Frakklandi

Liverpool gæti fundið arftaka Salah í Frakklandi
433Sport
Fyrir 2 dögum

Setur spurningamerki við hvernig var talað í Hafnarfirði fyrir mót – „Kannski hrista menn hausinn en þora ekki að segja neitt“

Setur spurningamerki við hvernig var talað í Hafnarfirði fyrir mót – „Kannski hrista menn hausinn en þora ekki að segja neitt“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Arnar var nálægt því að taka við starfi í Færeyjum – „Mér fannst þetta ógeðslega leiðinlegt“

Arnar var nálægt því að taka við starfi í Færeyjum – „Mér fannst þetta ógeðslega leiðinlegt“
433Sport
Fyrir 2 dögum

KR-ingar óstöðvandi – Dramatík víða í kvöld

KR-ingar óstöðvandi – Dramatík víða í kvöld
433Sport
Fyrir 2 dögum

Páfinn gæti tekið óvænt skref

Páfinn gæti tekið óvænt skref