fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Pressan

Störfum fækkaði um 140.000 í Bandaríkjunum í desember – Allt kvennastörf

Kristján Kristjánsson
Sunnudaginn 17. janúar 2021 11:00

Bólusett í New York. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrir ári síðan gerðist sá merki atburður að fleiri konur voru í vinnu í Bandaríkjunum en karlar. Í þrjá mánuði voru konur á vinnumarkaði fleiri en karlar. Þetta hafði aðeins einu sinni áður gerst, í skamman tíma í árslok 2009 og ársbyrjun 2010.

CNN skýrir frá þessu. Fram kemur að önnur atriði er aðskilja kynin á vinnumarkaði hafi þó áfram verið við lýði, til dæmis hafi konur verið líklegri til að vera í hlutastörfum og að þær hafi fengið lægri laun en karlar eða 81% af launum þeirra.

En heimsfaraldur kórónuveirunnar batt endi á þessa jákvæðu þróun og ástandið hefur eiginlega bara versnað síðan. Í desember fækkaði störfum á bandarískum vinnumarkaði um 140.000. Segja má að öll þessi störf hafi verið störf sem konur voru í því 156.000 konur misstu vinnuna. Á sama tíma fjölgaði körlum í vinnu um 16.000.

Þegar kafað er ofan í tölurnar sést að hvítum konum í vinnu fjölgaði en svörtum og latneskum konum fækkaði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 10 klukkutímum

Barnamúmían dularfulla – Fundu dánarorsökina

Barnamúmían dularfulla – Fundu dánarorsökina
Pressan
Fyrir 10 klukkutímum

Aukin glæpatíðni á Tenerife

Aukin glæpatíðni á Tenerife
Pressan
Í gær

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin
Pressan
Í gær

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“
Pressan
Í gær

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig
Pressan
Í gær

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Geimfarar yfirgáfu Alþjóðlegu geimstöðina vegna súrefnisleka

Geimfarar yfirgáfu Alþjóðlegu geimstöðina vegna súrefnisleka
Pressan
Fyrir 2 dögum

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman