fbpx
Föstudagur 04.júlí 2025
Fókus

Ástarævintýri og skilnaðir ársins

Fókus
Föstudaginn 1. janúar 2021 10:00

Samsett mynd.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þó svo að landsmenn eyddu stórum hluta ársins innilokaðir og líkurnar á skemmtistaðasleik voru sífellt hverfandi þá tókst amor að skjóta nokkrum örvum.

Ár ástarinnar hefur verið viðburðarríkt, hvort sem ný ævintýri hófust eða ástin rann sitt skeið.

Hættu saman: Manuela og Jón dansari

Athafnakonan Manuela Ósk Harðardóttir og dansarinn Jón Eyþór Gottskálksson felldu saman hugi við tökur á þáttunum Allir geta dansað á Stöð 2 haustið 2019. Þau opinberuðu samband sitt í byrjun árs en leiðir þeirra skildu í vor.

Manuela og Eiður. Mynd/Instagram

Byrjuðu saman: Manuela og Eiður

Í byrjun júlí komu fyrstu fregnir um að Manuela hefði nælt sér í kvikmyndaframleiðandann Eið Birgisson. Það leið ekki á löngu þar til parið staðfesti fréttirnar. Þau eru flutt inn saman og hafa verið dugleg að flagga ást sinni með fylgjendum sínum á samfélagsmiðlum.

Kristín Péturs. Mynd/Hanna

Hættu saman: Binni Löve og Kristín Péturs

Áhrifavaldaparið Brynjólfur Löve Mogensson og Kristín Pétursdóttir hættu saman fyrri hluta árs. Þau eiga saman son og voru eitt vinsælasta par Íslands. Kristín er leikkona og Brynjólfur starfar sem markaðsstjóri KIWI.

Binni Löve og Edda Falak. Myndir/Instagram

Byrjuðu saman: Binni Löve og Edda Falak

Brynjólfur fann þó ástina á ný í örmum CrossFit-stjörnunnar Eddu Falak í lok árs.

Saga Sig og Villi. Samsett mynd.

Hættu saman: Saga Sig og Villi

Einn vinsælasti tískuljósmyndari landsins, Saga Sigurðardóttir, og tónlistarmaðurinn Vilhelm Anton Jónsson, betur þekktur sem Villi Naglbítur, hættu saman eftir rúmlega árs samband.

Anna Lilja og Grímur. Mynd/Facebook

Hættu saman: Anna Lilja og Grímur 

Athafnakonan Anna Lilja Johansen og Grímur Alferð Garðarsson, einn eigandi Best Sellers veldisins, ákváðu að fara í sitthvora áttina í ár.

Grímur og Svanhildur. Samsett mynd: Twitter/Torg

Byrjuðu saman: Svanhildur og Grímur 

Seint á árinu byrjaði Grímur að rugla saman reitum með athafnakonunni Svanhildi Nönnu Vigfúsdóttur, sem er fyrrverandi stjórnarformaður VÍS og fyrrverandi hluthafi í Skeljungi.

Högni og Snæfríður. Mynd/Ernir

Hættu og byrjuðu saman: Snæfríður og Högni

Snæfríður Ingvarsdóttir, ein efnilegasta leikkona landsins, og hinn hæfileikaríki Högni Egilsson, söngvari Hjaltalín, hættu saman í byrjun sumars eftir sex ára samband. Það leið þó ekki á löngu þar til leiðir þeirra lágu saman aftur og þau fundu ástina á ný.

Benni og Tinna. Myndabanki Torgs.

Byrjuðu saman: Benni og Tinna 

Leikstjórinn og kvikmyndaundrið Benedikt Erlingsson og leikkonan, verkefnastjórinn og framkvæmdarstjóri Þjóðleikhússins Tinna Lind Gunnarsdóttir, urðu að einu glæsilegasta pari landsins í ár.

Svala Björgvins og Gauti. Mynd/Instagram

Hættu saman: Svala Björgvins og Gauti 

Tónlistarkonan Svala Björgvinsdóttir og Guðmundur Gauti Sigurðarson, alltaf kallaður Gauti, hættu saman í sumar eftir tveggja ára samband.

Svala Björgvins og Kristján Einar. Aðsend mynd.

Byrjuðu saman: Svala Björgvins og Kristján Einar

Í lok sumars var Svala komin með nýjan kærasta, Kristján Einar Sigurbjörnsson sem er 22 ára faðir og sjómaður frá Húsavík. Samband þeirra vakti mikla athygli vegna aldurmunarins, sem er 21 ár. Þau trúlofuðust seint á árinu.

Dóri. Mynd/Instagram

Hættu saman: Bríet og Dóri

Bríet Ísis Elfar, ein efnilegasta söngkona landsins, hætti með kærasta sínum, Halldóri Karlssyni, eða Dóra eins og hann er kallaður, fyrri hluta árs. Þó sambandsslitin sjálf hafi ekki vakið gífurlega athygli á sínum tíma, þá ættu flestir landsmenn að vita til þeirra nú þar sem Bríet söng um ástarsorgina á nýjustu plötu sinni, Kveðja Bríet. Platan hefur vakið mikla lukku hjá hlustendum, sérstaklega fyrir hversu einlæg og falleg hún er.

Bríet og Rubin. Mynd/Stefán/Torg

Byrjuðu saman: Bríet og Rubin

Bríet varð ástfangin í ástarsorg. Hún byrjaði með Rubin Pollock, gítarleikara Kaleo í sumar.

Kolbeinn Sigþórsson. Mynd/Hanna

Hættu saman: Kolbeinn Sigþór og Hildur 

Landsliðskappinn Kolbeinn Sigþórsson varð einhleypur á ný í ár. Hann var í sambandi með fyrrverandi flugfreyju WOW-air, Hildi Hilmarsdóttur.

Kristín Sif og Aaron. Mynd/Instagram

Byrjuðu saman: Kristín Sif og Aaron 

Útvarps- og íþróttakonan Kristín Sif Björgvinsdóttir hóf nýtt ævintýri með hinum bandaríska Aaron Kaufman í byrjun árs.

Baddi og Sunna. Mynd: Ernir/Facebook

Byrjuðu saman: Baddi og Sunna 

Tónlistarmaðurinn Bjarni Lárus Hall, betur þekktur sem Baddi, og Sunna Sæmundsdóttir byrjuðu saman í ár. Baddi er þekktastur fyrir að vera söngvari hljómsveitarinnar Jeff Who? Sunna er rísandi stjarna í fjölmiðlaheiminum og fréttamaður hjá Stöð 2 og Vísi.

Linda Pé. Mynd/Ásta Kristjánsdóttir.

Linda Pé á lausu

Alheimsfegurðardrottningin, frumkvöðullinn og markþjálfinn Linda Pé varð einhleyp seinni hluta árs.

Ásdís Rán. Mynd/Hanna

Hættu saman: Ásdís Rán og Jóhann Wíum 

Fyrirsætan og athafnakonan Ásdís Rán varð einhleyp á ný í ár. Hún var áður í sambandi með athafnamanninum Jóhanni Wíum, en það slitnaði úr því í vor.

Björg og Tryggvi.

Byrjuðu saman: Björg og Tryggvi 

Sjónvarpsstjarnan og handritahöfundurinn Björg Magnúsdóttir og auglýsingahönnuðurinn Tryggvi Þór Hilmarsson byrjuðu saman í ár.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

David endar á Ítalíu
Fókus
Í gær

Sjaldséð sjón: Goðsögn frá sjöunda áratugnum mætti á rauða dregilinn

Sjaldséð sjón: Goðsögn frá sjöunda áratugnum mætti á rauða dregilinn
Fókus
Í gær

Aðdáendur agndofa eftir að leikkonan birti mynd af sér með ketti sínum – „Þetta er ekki í lagi“

Aðdáendur agndofa eftir að leikkonan birti mynd af sér með ketti sínum – „Þetta er ekki í lagi“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Klæddist svörtum litlum kjól á 76 ára afmælisdaginn

Klæddist svörtum litlum kjól á 76 ára afmælisdaginn
Fókus
Fyrir 3 dögum

Arnmundur Ernst um móðurmissinn: „Það vissu allir hvað við vorum að ganga í gegnum“

Arnmundur Ernst um móðurmissinn: „Það vissu allir hvað við vorum að ganga í gegnum“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Guðrún og Árni ræða um nekt og svara vinsælli spurningu: „Hvað ef ég fæ bóner?“

Guðrún og Árni ræða um nekt og svara vinsælli spurningu: „Hvað ef ég fæ bóner?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vikan á Instagram – Ber að ofan í „Sexico“

Vikan á Instagram – Ber að ofan í „Sexico“