fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Pressan

Trump er sagður hafa íhugað að ráðast á kjarnorkustöð í Íran í síðustu viku

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 17. nóvember 2020 06:59

Trump REYNOLDS

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Donald Trump hefur tekið harða afstöðu gegn Íran á forsetatíð sinni, þar á meðal sagði hann Bandaríkin frá samningi við Íran um kjarnorkumál. Í síðustu viku er hann sagður hafa beðið um mat á hvort vænlegt væri að gera árásir á kjarnorkustöðvar í Íran. Hann er síðan sagður hafa ákveðið að gera ekki slíkar árásir.

Sky News skýrir frá þessu. Fram kemur að Trump hafi beðið um mat á slíkum árásum á fundi í síðustu viku þar sem Mike Pence, varaforseti, Mike Pompeo, utanríkisráðherra, og Christopher Miller, starfandi varnarmálaráðherra, voru meðal annarra viðstaddir.

Ónafngreindur embættismaður sagði í samtali við New York Times að Trump hafi verið ráðið frá að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran af ótta við að þær myndu verða kveikjan að enn víðtækari átökum. „Hann bað um mat á þessu. Þeir drógu upp sviðsmyndirnar og hann ákvað að lokum að grípa ekki til aðgerða,“ sagði heimildarmaðurinn.

Talsmenn Hvíta hússins hafa neitað að tjá sig um málið.

Daginn áður en Trump viðraði þessa hugmynd sína kom fram í nýrri skýrslu SÞ að Íran hafi flutt þróaðar skilvindur, sem eru notaðar til að auðga úran, úr verksmiðjuhúsnæði í neðanjarðaraðstöðu. Þetta er brot á kjarnorkusamningi landsins frá 2015. Íran á einnig 2,4 tonn af lítt auðguðu úrani en það er miklu meira ein heimilt er samkvæmt fyrrgreindum samningi en hann heimilar landinu að eiga 202,8 kg.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 14 klukkutímum

Barnamúmían dularfulla – Fundu dánarorsökina

Barnamúmían dularfulla – Fundu dánarorsökina
Pressan
Fyrir 14 klukkutímum

Aukin glæpatíðni á Tenerife

Aukin glæpatíðni á Tenerife
Pressan
Í gær

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin
Pressan
Í gær

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“
Pressan
Í gær

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig
Pressan
Í gær

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Geimfarar yfirgáfu Alþjóðlegu geimstöðina vegna súrefnisleka

Geimfarar yfirgáfu Alþjóðlegu geimstöðina vegna súrefnisleka
Pressan
Fyrir 2 dögum

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman