fbpx
Laugardagur 13.september 2025

Sumarið á margan hátt sérstakt

Gunnar Bender
Þriðjudaginn 13. október 2020 09:19

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Veiðitölurnar úr laxveiðiánum eru flestar komnar eftir sumarið. Aðeins er veitt ennþá í sleppiánum, Eystri og Ytri Rangá og Affalinu. Veiðimenn eru ennþá að veiða sjóbirting á fullu en það er aðeins minni sjóbirtingsveiði en oft áður en samt veiði víða.

Svo virðist sem sjóbirtingurinn sé farinn að dreifast meira víða um land. Hann sé farinn að veiðast í laxveiðiám sem lítið hafa gefið að eins og vestur í Dölum þar sem einn og einn birtingur veiddist áður fyrr.

Krossá  á Skarðsströnd hefur aldrei gefið mikið af sjóbirtingi en í sumar gekk hellingur af honum í ána og veiddist töluvert. Áður fyrr veiddust þar bleikjur en nú sjást þær varla lengur. Allt getur breyst á nokkrum árum og engin veit neitt hvað er að gerast. Flundra æddi um allt fyrir nokkrum árum á þessum slóðum, þær hafa horfið líka.

Búið var að spá góðri laxveiði í sumar en veiðin slapp rétt til í sumum veiðiánum, laxinn gekk í sumar,  en var svakalega tregur að taka hjá veiðimönnum.

,,Við vorum í Langá á Mýrum undir það síðasta, hellingur af fiski víða í ánni, en laxinum datt ekki í hug að taka neitt,“ sagði veiðimaðurinn sem við náðum tali af. Hann sagðist hafa frétt af öðrum sem fór í sex daga veiði núna í september og hann fékk ekki högg allan tímann.

Veiðin er alltaf jafn skrítin, lítið er vitað um það sem gerist í hafinu.  Og hvað skeður næsta sumar veit bara enginn, fiskifræðingar spáðu góðri veiði í sumar, það féll um sjálf sig. Svona geta hlutirnir verið.

Hvernig verður hún næsta sumar veit enginn. Fáir vilja spá, flestir segja lítið sem ekkert. Það verður tíminn að leiða í ljós.

 

Mynd. Hann er á í Laxá í Kjós í Laxfossinum. Mynd GB

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Kvörtunum vegna Reykjavíkurflugvallar hefur fjölgað hratt – Umsókn um nýtt starfsleyfi verið meira en ár í vinnslu

Kvörtunum vegna Reykjavíkurflugvallar hefur fjölgað hratt – Umsókn um nýtt starfsleyfi verið meira en ár í vinnslu
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Ronaldo og félagar vilja ungstirni Börsunga óvænt

Ronaldo og félagar vilja ungstirni Börsunga óvænt
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Einlægur Guðjón Pétur fer yfir ákvörðun sína – „Ég er mjög stoltur af þessum ferli“

Einlægur Guðjón Pétur fer yfir ákvörðun sína – „Ég er mjög stoltur af þessum ferli“
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Skoða framtíð Maguire og Shaw hjá félaginu

Skoða framtíð Maguire og Shaw hjá félaginu
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Óvænt nafn í hóp hjá City um helgina – Ekki spilað fyrir félagið í tæp tvö ár

Óvænt nafn í hóp hjá City um helgina – Ekki spilað fyrir félagið í tæp tvö ár
Eyjan
Fyrir 18 klukkutímum

Orðið á götunni: Morfís útspil Sjálfstæðismanna

Orðið á götunni: Morfís útspil Sjálfstæðismanna
Fókus
Fyrir 19 klukkutímum

Konunglegur lausaleikskrógi afhjúpaður – „Ég er líffræðilegur faðir Clements“

Konunglegur lausaleikskrógi afhjúpaður – „Ég er líffræðilegur faðir Clements“
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Eiður Smári titraði og skalf upp í sófa á þriðjudagskvöld þegar synir hans voru í eldlínunni

Eiður Smári titraði og skalf upp í sófa á þriðjudagskvöld þegar synir hans voru í eldlínunni