fbpx
Mánudagur 09.júní 2025
Eyjan

Jesús með brjóst fer fyrir brjóstið á Halli – „Hvað er hægt að segja um Þjóðkirkjuna? Jesús trans …“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 4. september 2020 20:00

Samsett mynd DV.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Halli Hallssyni, fjölmiðlamanni og þjóðfélagsrýni, ofbýður ný opnumynd á Facebook-síðu Kirkjunnar. Gefur þar að líta mynd af Jesú Kristi með brjóst.

Vefur Morgunblaðsins fjallaði um málið í dag og varð Pétur G. Markan, samskiptastjóri Þjóðkirkjunnar, fyrir svörum. Segir Pétur myndina endurspegla fyrst og fremst samfélagið sem við búum í.

„Hug­mynd­in að mynd­efn­inu er að fanga sam­fé­lagið sem við öll vilj­um til­heyra; rétt­látt, for­dóma­laust og kær­leiks­ríkt um­hverf­ismiðað sam­fé­lag sem ein­blín­ir á kær­leiks­boðskap Jesú Krists í stað þess að hengja sig í hvers kyns hann hafi verið. Það skipt­ir ekki máli. Kannski var hann eft­ir allt sam­an „non­bin­ary“ trans Jesús eða kona. Það bara skipt­ir engu máli. Það sem skipt­ir máli er kær­leik­ur­inn og hvernig hann sí­fellt lagði lög­málið til hliðar og ein­blíndi á kær­leik­ann, mann­v­irðingu og ein­ingu allra í and­an­um,“  segir Pétur í samtali við Morgunblaðið.

Skiptir engu máli hver Jesús er?

Halli er brugðið yfir þessari myndnotkun og spyr í Facebook-færslu hvort foreldrum sé óhætt að senda börn sín í sunnudagaskóla Þjóðkirkjunnar. „Hvernig koma þau til baka?“ spyr Hallur.

Halli blöskrar sú afstaða að Péturs að það skipti ekki máli hver Jesús var. „Jesús sumsé var eitt af 52 kynjum sem börnum er kennt að velja af “sannleikstré” Þjóðkirkjunnar … börn eru ekki lengur bara strákar & stelpur?“ segir Hallur en pistill hans er eftirfarandi:

Hvað er hægt að segja um Þjóðkirkjuna? Jesús trans …

“Kirkjan vill ekki hengja sig í hver Jesús var,” segir samskiptastjóri Kirkjunnar. “Það skipt­ir ekki máli. Kannski var hann eft­ir allt sam­an „non­bin­ary“ trans Jesús eða kona. Það bara skipt­ir engu máli.”

Þá hafið þið það … það skiptir engu máli hver Jesús var … Jesús sumsé var eitt af 52 kynjum sem börnum er kennt að velja af “sannleikstré” Þjóðkirkjunnar … börn eru ekki lengur bara strákar & stelpur?

Biblían segir í 1. Mósebók: “Guð skapaði manninn eftir sinni mynd, hann skapaði hann eftir Guðs mynd. Hann skapaði þau karl og konu.”

Biskupsstofu finnst í lagi að láta sköpun Drottins í hendur BigPharma & BigBísniss til að fikta við; innrætingin & sáning efasemda hefjist strax í Sunnudagaskóla.

Er foreldrum óhætt að senda börn sín í Sunnudagaskóla Þjóðkirkjunnar? Hvernig koma þau til baka …

Annar trúmaður, Gunnar Þorsteinsson, kenndur við Krossinn, tekur í sama streng og skrifar: „Boðar Þjóðkirkjan annan Krist en þann sem Biblían boðar?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt