fbpx
Föstudagur 26.desember 2025
Pressan

Dularfullar sprengingar og eldsvoðar í Íran – Er skuggastríðið komið á nýtt stig?

Kristján Kristjánsson
Sunnudaginn 19. júlí 2020 22:00

Natanz úranauðgunarstöðin. Mynd: EPA-EFE/MAXAR TECHNOLOGIES

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dularfullar sprengingar og eldsvoðar hafa að undanförnu átt sér stað í Íran. Meðal annars í virkjun, vatnsdreifingarstöð og sjúkrahúsi. Auk þess hafa undarlegir atburðir átt sér stað í verksmiðjum og úranauðgunarstöð. Alls hafa 20 manns látist í þessum sprengingum og eldsvoðum. Íranskir fjölmiðlar, sem lúta stjórn klerkastjórnarinnar, reyna að gera lítið úr þessum atburðum en ljóst er að klerkastjórninni er brugðið og athygli erlendra leyniþjónustustofnana er vakin.

Þann 26. júní varð öflug sprenging í verksmiðju í Khojir í útjaðri Teheran. Í verksmiðjunni eru framleidd tæki í eldflaugar hersins. Þær eru meðal annars sendar til Hizbollah hryðjuverkasamtakanna í Líbanon. Klerkastjórnin segir að um gassprengingu hafi verið að ræða.

Þann 2. júlí kom upp mikill eldur í úranauðgunarstöðinni Natanz í miðhluta landsins, líklegast í kjölfar sprengingar.  Klerkastjórnin hefur viðurkennt að mikið tjón hafi orðið og að kjarnorkuáætlun landsins muni seinka mikið vegna þessa.

Aðfaranótt föstudags varð mikil sprenging í Teheran. New York Times hefur eftir heimildamönnum í Miðausturlöndum að ísraelskir leyniþjónustumenn hafi náð að koma sprengju fyrir í Natanz, sem er sú íranska herstöð sem best er gætt. Þetta setur málið í nýtt samhengi. Er hugsanlegt að skuggastríðið á milli Ísraels og Íran sé komið á nýtt stig?

Bandaríkin hafa dregið sig út úr samningnum við Íran um kjarnorkumál síðarnefnda landsins. Klerkastjórnin er einnig á leið út úr samkomulaginu. Ísraelsmenn hafa heitið því að Íran fái aldrei að eignast kjarnorkuvopn. Ísraelskir hernaðarsérfræðingar ræða reglulega hvort tími sé kominn til að gera árásir á kjarnorkuver og kjarnorkustöðvar Írana.

Sprengingarnar geta að mati sérfræðinga verið merki um að átök ríkjanna séu að magnast. Talið er að fyrir 10 árum hafi Ísrael og Bandaríkin staðið fyrir netárás á Íran þar sem Stuxnet tölvuveirunni var komið í tölvur þar í landi. Með því seinkaði kjarnorkuáætlun Íran um mörg ár. Margir íranskir kjarnorkuvísindamenn hafa látist á dularfullan hátt í gegnum tíðina, verið drepnir.

Íranar réðust á vatnsveitur í Ísrael í apríl og tókst nærri því að eitra vatnið í þeim með klór. Það hefði lamað vatnsdreifingu til tugþúsunda heimila í miðri hitabylgju.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Rússneskur herforingi sprengdur í loft upp

Rússneskur herforingi sprengdur í loft upp
Pressan
Fyrir 4 dögum

Dregur til baka fullyrðingu um að vinur hans hafi misnotað hann fyrir áratugum

Dregur til baka fullyrðingu um að vinur hans hafi misnotað hann fyrir áratugum
Pressan
Fyrir 4 dögum

29 börn hurfu af götum Atlanta – Einn maður var ákærður en fjölskyldurnar segja réttlætinu ekki fullnægt

29 börn hurfu af götum Atlanta – Einn maður var ákærður en fjölskyldurnar segja réttlætinu ekki fullnægt
Pressan
Fyrir 4 dögum

Norður-Kóreumenn sagðir hafa slegið vafasamt met sem þeir sjálfir áttu

Norður-Kóreumenn sagðir hafa slegið vafasamt met sem þeir sjálfir áttu
Pressan
Fyrir 5 dögum

Vonast til að leysa loksins ráðgátuna um morðið á litlu fegurðardrottningunni eftir að ný sönnunargögn komu fram

Vonast til að leysa loksins ráðgátuna um morðið á litlu fegurðardrottningunni eftir að ný sönnunargögn komu fram
Pressan
Fyrir 5 dögum

Ungar konur hjálpuðu barni að fremja morð

Ungar konur hjálpuðu barni að fremja morð