fbpx
Föstudagur 15.ágúst 2025
Eyjan

Vinstri grænir vænta niðurstöðu í dag

Trausti Salvar Kristjánsson
Mánudaginn 13. nóvember 2017 09:18

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna. Mynd: DV/Sigtryggur Ari

Þingflokkur Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs mun halda áfram að funda klukkan 13 í dag, um  hvort farið verði í formlegar stjórnarmyndunarviðræður við Sjálfstæðisflokkinn og Framsókn. Ekki náðist niðurstaða hjá þingflokknum í gær, þar sem nokkurrar andstöðu gegnir innan þingflokksins og hjá baklandinu, um að fara í samstarf með Sjálfstæðisflokknum.

Katrín Jakobsdóttir virðist hafa stuðning Steingríms J. Sigfússonar, sem í samtali við Vísi.is sagðist ætla að fylgja sínum formanni og þingflokksformanni  „þétt að málum. Það er ósköp einfalt. Ég styð það sem þær leggja til.“

Þá sagðist Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður VG, það sína persónulegu skoðun að það væri rétt að fara í þessar viðræður, þar sem VG hefði gefið það út fyrir kosningar að það myndi ekki útiloka samstarf við neinn flokk:

„Þessvegna væri það skrítið ef við útilokuðum samstarf við Sjálfstæðisflokkinn eftir kosningar,“ sagði Kolbeinn  í fréttum RÚV í morgun.

Fari svo að þingflokkurinn samþykki að starfa með Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki, má gera ráð fyrir að viðræður flokkanna þriggja hefjist strax á morgun, að því gefnu að Katrín hafi þá fengið umboð til stjórnarmyndunarviðræðna frá forseta Íslands.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Minnisleysi ráðherrans

Óttar Guðmundsson skrifar: Minnisleysi ráðherrans
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Tvær konur berjast um fjöregg Framsóknar – styttist í flokksþing

Orðið á götunni: Tvær konur berjast um fjöregg Framsóknar – styttist í flokksþing
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Hræðslan við breytingar er íhaldinu ofviða

Sigmundur Ernir skrifar: Hræðslan við breytingar er íhaldinu ofviða
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Stjörnustund ráðherrans

Óttar Guðmundsson skrifar: Stjörnustund ráðherrans
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Orðið á götunni: Höfundur hrunsins toppar sjálfan sig – kallar Kristrúnu og Þorgerði Katrínu „fermingarstúlkur“

Orðið á götunni: Höfundur hrunsins toppar sjálfan sig – kallar Kristrúnu og Þorgerði Katrínu „fermingarstúlkur“
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Össur segir Guðlaug Þór hafa farið viljandi með rangt mál – „Bókstaflega skrældur í tætlur eins og hýði af gamalli kartöflu“

Össur segir Guðlaug Þór hafa farið viljandi með rangt mál – „Bókstaflega skrældur í tætlur eins og hýði af gamalli kartöflu“