Heimildaþættirnir Tiger King: Muder, Mayhem and Madness, hafa svo sannarlega slegið í gegn á Netflix. Þættirnir eru sem stendur í fyrsta sæti yfir þá þætti sem Íslendingar horfa mest á á streymisveitunni þessa daganna.
Þáttunum hefur verið fagnað fyrir það að gefa okkur eitthvað allt annað að hugsa um en COVID-19 faraldurinn. Líklega komumst við varla lengra frá honum en að horfa á heimildaþætti sem einblína á furðulegt líf Joe Exotics og þeirrar atburðarrásar sem varð til þess að hann var í janúar á þessu ári dæmdur í 22 ára fangelsi.
Hér verður stiklað á stóru um söguna sem er gerð ítarleg skil í þáttunum. Lesendur eru þó hvattir til að horfa sjálfir á þættina sem eru lyginni líkastir.
Ekki lesa lengra ef þú vilt láta efni þáttana koma þér á óvart
.
.
.
.
Síðasta viðvörun!
.
.
.
.
Joe Exotic
Í þáttunum er fjallað um þann sturlaða heim sem eigendur stóra kattardýra lifa og hrærast í og þá er athyglinni sérstaklega beint að einum manni. Joseph Maldonado–Passage, eða Joe Exotic. Joe þessi ræktar tígrisdýr og er meginviðfangsefni þáttanna. Joe er samkynhneigður kúreki, með sítt að aftan og æði fyrir skotvopnum.
Joe er fæddur árið 1963, og hét áður Joseph Schreibvogler. Hann keypti gæludýrabúð árið 1989 með bróður sínum, en saman deildu þeir heitri dýraást. Bróðir hans lést svo sviplega í kjölfar áreksturs árið 1997 og fjölskylda þeirra fékk töluverðar fjárbætur vegna andlátsins. Þá keypti Joe sér búgarð og opnaði þar dýragarð sem var tileinkaður minningu bróðurins.
I dýragarðinum mátti líta mikið af framandi dýrum sem Joe hafði orðið sér út um meðal annars tígrisdýr og ljón. Joe varð í kjölfarið töluvert þekktur í nærumhverfi sínu. Til að halda dýragarðinum gangandi þá ræktaði hann undan dýrunum til að tryggja að gestir gætu alltaf litið ungviðið augum.
Carole Baskin
Eins og gjarnan er með dýragarða þá hófu dýraverndunarsamtök afskipti af starfsemi hans og sökuðu hann um grimmd gegn dýrum. Meðal þeirra var Carole Baskin, sem rak athvarf fyrir stór kattardýr í Flórída.
Athvarfið rekur Carole í góðgerðarskyni. Hún segir í þáttunum að hún hafi elskað dýr og þá sérstaklega ketti allt frá því að hún var barn. Hún á að baki erfiðar lífsreynslur. Hún opnaði athvarfið upphaflega á tíunda áratug síðustu aldar með fyrrum eiginmanni sínum Don Lewis, sem var auðmaður sem hvarf með dularfullum hætti árið 1997. Markmið samtakanna er að veita dýrunum sem þar dvelja athvarf til að lifa lífi sínu í friði.
Erkifjendur
Carole hefur gagnrýnt Joe Exotic harðlega fyrir meðferð sína á dýrunum og vegna þess hafa þau eldað grátt silfur um langa hríð og er oft talað um þau sem erkifjendur.
Joe hefur á móti sakað Carole um að auðgast á athvarfinu sem hún rekur. Hann komst yfir dagbók hennar sem fyrrum starfsmaður hennar hafði tekið ófrjálsri hendi og gaf út myndbönd þar sem hann las upphátt úr bókinni og telur hann að í þessum dagbókum megi finna færslur þar sem Carole játi að hafa komið fyrrum eiginmanni sínum fyrir kattarnef. Þetta er skoðun sem börn fyrrum eiginmanns hennar deila með Joe en þau segja í þáttunum að Carole hafi myrt föður þeirra og fengið tígrisdýrin til að farga líkamsleifunum. Carole þvertekur þó fyrir þær ásakanir.
Joe hélt áfram að áreita Carole með myndbandsbirtingum og gekk jafnvel svo langt að endurskíra dýragarð sinn í höfuðið á fyrirtæki henni. Hún svaraði fyrir sig með því að höfða mál gegn Joe þar sem hún sakaði hann um brot gegn vörumerkjalögum.
Leigumorð
Í kjölfarið varð Joe gjaldþrota og þurfti að selja dýragarðinn. Hann hélt þó áfram að vera tengdur garðinum og gerði árangurslausa tilraun til að komast inn í pólitík.
Joe var giftur Travis Maldonado, sem framdi sjálfsvíg árið 2017. Eftir andlát Travis þá varð Joe gagntekinn af hatri sínu í garð Carole og leitaði leiða til að koma henni fyrir kattarnef. Hann réð til þess starfsmann dýragarðsins, en sá sveik Joe og stakk af með fyrirgreiðsluna. Þegar þar var komið við sögu var alríkislögregla Bandaríkjanna, FBI, farin að hafa auga með Joe vegna meðferðar hans á dýrunum. Starfsmenn FBI komust að því að Joe væri að leita leiða til að fá Carole tekna af lífi og með aðstoð tálbeitu komst upp um Joe og hann var í kjölfarið handtekinn fyrir tilraun til morðs.
Í janúar á þessu ári var Joe dæmdur í 22 ára fangelsi fyrir tilraun til morðs og fyrir að drepa fjölda tígrisdýra. Hann telur að heimildarþættirnir muni veita honum uppreisn æru.
Sögu Joe er gerð ítarleg skil í þáttunum og ofangreind samantekt er þar varla dropi í hafið. Svo ef þú ert í sóttkví, einangrun, fjarvinnu eða í páskafríi og veist ekkert hvað þú átt að gera við þig. Þá gæti Tiger King verið nákvæmlega það sem þú þarft til að dreifa huganum.
Hér má sjá viðbrögð nokkura Íslendinga við þáttunum á Twitter:
Þessi gaur úr Tiger King er mjög ákveðin týpa af ameríkana: Mörg höfuðföt (til að fela skalla), hi-maintenance skegg, krumpað leður, mörg layers af fötum, mikið glingur, flóknar gallabuxur, mikil og krípí gredda. Tunnu vaxtarlag. Þessi týpa finnst hvergi annarsstaðar í heiminum. pic.twitter.com/2UmIA80Z2y
— Bobby Breiðholt (@Breidholt) April 2, 2020
Fokking Carole Baskin! https://t.co/CO1RSApZQb
— Snæbjörn (@artybjorn) April 2, 2020
Ég er í óreglu. Át tvo hnetutoppa uppi í rúmi og horfði á Tiger King í gær. Sofnaði seint. Er að hlaða í að snúa blaðinu við. Þarf að smíða kofa úti í garði eða eitthvað svona verklegt og gagnlegt. Svo ætla ég að reyna að hætta að lesa fréttir.
— MaggaBest🐒 (@margrethugrun) April 2, 2020
Það er svo margt sem mig langar að segja um Tiger King en orðaforðinn sem ég bý yfir hreinlega nær ekki utan um þetta fyrirbæri sem Tiger King er.
— Alma Mjöll (@AlmaMjoll) April 1, 2020
Joe Exotic, Tiger King, er í framkomu og talanda einhver viðbjóðslegur kokteill af Donald Trump og Stan Valchek. pic.twitter.com/bjmwnmsDN3
— Gunnar Dofri (@gunnardofri) April 1, 2020
Málið með Tiger king er; manneskjur eru ógeð.
— Helga Dögg (@DoooHelga) March 31, 2020
Þegar ég var sex ára langaði mig að eiga mitt eigið tívolí í garðinum eins og Michael Jackson og eiga þar að auki ljón, tígrisdýr, svartan pardus, kyrkislöngu og Doberman hunda fyrir gæludýr. Hefði sennilega ekki fúlsað við stórum skotvopnum heldur. Ég var baby Tiger King!
— Theódóra (@Skoffin) March 31, 2020
Já já, Tiger King er fínt. En ef einhver hefur einhvertíma vantað vænt pússt af Otrivin Menthol þá er það hann Kirk karlinn. Stíflara nef hefur ekki verð til. #tigerking #Otrivin pic.twitter.com/tqw3XKpK5A
— Eiður Kristjánsson (@EidurKristjanss) March 30, 2020
Er Dalsmynni Tiger King Íslands?
— Sigrun Skaftadottir (@sigrunskafta) March 30, 2020
Ég horfði loksins á Tiger King í dag í einum rikk (mínus smá matarhlé)… WHAT A RIDE! Alltaf smá frelsandi að horfa á þætti og halda ekki með neinum af aðalkarakterunum (ég hélt bara með dýrunum)🐅
— Sunna Ben (@SunnaBen) March 30, 2020
Ég á eiginlega bara bàgt, mér finnst þetta svo sturlað! Og eftir Tiger King trúi èg ÖLLU uppá fólk og samfèlög
— Sigga Dögg (@KjaftadumKynlif) March 29, 2020
Tiger King er Uglu approved 🐯👌 pic.twitter.com/Zfzcpix1U3
— Hildur (@hihildur) March 29, 2020
"Aaaaaaaaaaandskotinn"
– Ég á 2 sek fresti (er að horfa á Tiger King)— Pétur M. Urbancic (@PeturMarteinn) March 28, 2020
Byrjaði á #TigerKing í gær. Lýsingin er murder, mayhem and madness. Væri ekki hægt að lýsa þessu betur nema bæta við redneck game of thrones 🤯
— Svanborg Sigmarsd (@Svanb) March 28, 2020