fbpx
Sunnudagur 14.desember 2025
433Sport

Velur að spila áfram undir stjórn Solskjær þrátt fyrir tilboð frá stórliðum

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 9. mars 2020 09:53

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tahith Chong, tvítugur kantmaður Manchester United er að gera nýjan samning við félagið. Samningur hans við félagið er að renna út í sumar.

Chong sem er frá Hollandi hefur spilað tíu leiki fyrir aðallið Manchester United í ár.

Tilboð frá Inter, Barcelona og Juvenuts hafa komið á borð hans en hann hefur kosið að gera samning við United.

Ensk blöð segja að Chong muni þéna tæpar 5 milljónir á viku en talsverðar væntingar eru gerðar til hans.

Chong gæti þó fengið aukna samkeppni um spiltíma á næstu leiktíð en sagt er að United sé að reyna allt til þess að fá Jadon Sancho frá Manchester City.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Stefán skefur ekki af því – „Held að það sé ekki hægt að finna mikið auðvirðilegri persónu“

Stefán skefur ekki af því – „Held að það sé ekki hægt að finna mikið auðvirðilegri persónu“
433Sport
Í gær

Skoða það að semja við Antonio sem er staðráðinn í að halda áfram

Skoða það að semja við Antonio sem er staðráðinn í að halda áfram