Andrés Ingi Jónsson þingmaður hefur töluvert verið í brennidepli á dögunum eftir að hafa sagt sig úr þingflokki Vinstri grænna. Ástæða hans var óánægja með stjórnarsamstarf Vinstri grænna við Sjálfstæðisflokkinn og Framsóknarflokkinn.
Á samfélagsmiðlum og víða hefur fólk keppst við að hrósa Andrési fyrir að standa við hugsjónir sínar, að vera „prinsipp maður,“ eins og hann hefur verið kallaður af sínum fylgjendum og fleirum. Þetta er fjarri því að vera í fyrsta sinn og hefur þingmaðurinn ratað títt í fjölmiðla þar sem reglulegt mynstur má sjá.
Andrés Ingi hefur, ásamt Rósu Björk Brynjólfsdóttur, verið andsnúinn núverandi stjórnarsamstarfi VG við framannefnda flokka. Eftir úrsögnina hefur ríkisstjórnin 34 þingmenn af 63 á Alþingi og mun Andrés sitja sem óháður þingmaður út kjörtímabilið.
En hver er þessi maður? Hvaða prinsipp eiga hér við?
Rennum aðeins yfir þau og skoðum hvað gerir uppskrift að fyrirmyndartengdasyni. Byrjum á að skoða hvað annað fólk segir um hann:
„Hann hefur alltaf virkað á mig sem heill og sannur og ég skil hann ósköp vel“
– Kött Grá Pje rappari
„Ég vildi að það væru svona 10 eintök í viðbót af Andrési Inga á þingi“
– Eyrún Baldursdóttir hjúkrunarfræðingur
„Það er enn til fólk á þingi sem man hvers vegna það byrjaði í pólitík“
– Guðmundur Hörður, vefstjóri og fyrrverandi lögregluþjónn
Andrés Ingi er fæddur 16. ágúst árið 1979 og fagnaði þar af leiðandi stórafmæli þetta árið. Hann ólst upp á sveitabæ í Ölfusinu þar sem fjölskylda hans rak gistiheimili, og gekk í skóla í Hveragerði og á Selfossi. Hann stundaði síðar nám í þýsku og heimspeki í Berlín 2004–2006 og lauk M.A.-prófi í stjórnmálafræði í Háskólanum í Sussex ári síðar.
Í gegnum árin hefur hann starfað sem aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra, aðstoðarmaður umhverfis- og auðlindaráðherra, blaðamaður og nefndarritari hjá stjórnlagaráði. Þar að auki hefur hann starfað á geðdeildum Landspítala og unnið ýmis verkefni fyrir landsnefnd UNICEF á Íslandi.
Á yngri árum var Andrés Ingi mikill frímerkjasafnari og tilheyrði sérstökum klúbbi tímaritsins Æskunnar. Nöfn meðlima birtust í blaðinu og gátu safnarar skrifað hver öðrum og skipst á merkjum við hver annan. Nöfnin voru einnig send á Frímerkjasölu Póstmálastofnunar svo hægt var að hafa auga á nýjum merkjum.
Andrés hefur verið mjög virkur í jafnréttismálum og hefur barist gegn því að svonefndir karlaklúbbar séu allsráðandi. Þingmaðurinn sat í stjórn Kvenréttindafélags Íslands á árunum 2009 til 2013 og varð þar með fyrsti karlmaðurinn til að sitja í stjórn félagsins. Þetta kemur honum rakleiðis í góðu bækurnar.
„Frá því að ég settist á þing hef ég fjórtán sinnum þurft að fara í vinnuferðir til útlanda. Vegna þessara ferða ber ég ábyrgð á losun um 6 tonna af koltvíoxíði út í andrúmsloftið. Þá fékk ég Votlendissjóðinn til að kolefnisjafna þessi ferðalög,“ skrifar Andrés Ingi á Facebook-síðu sína, Andrés Ingi á þingi. Já, nafnið á Facebook-síðunni hans rímar. Hann er bara það mikill toppmaður.
Að hans sögn eru loftslagsbreytingar stærsta áskorun samtímans gagnvart manninum og kalla á átak allra í þágu komandi kynslóða. „Baráttan gegn loftslagshamförum virðist stundum ógnarflókið viðfangsefni. Flest markmiðin eru hins vegar ofureinföld, þótt leiðin að þeim kunni að vera vandrötuð,“ sagði Andrés.
Andrés hefur sagt umræðuna um starfskostnað þingmanna vera af hinu góða. Í samhengi kolefnisjöfnunar og ferðalaga stuðlar þingmaðurinn að sem minnstum ferðakostnaði, eins og liggur fyrir. Á útgefnum tölum um laun og aðrar kostnaðargreiðslur til alþingismanna fer ekki á milli mála að Andrés Ingi sé með þeim ódýrari.
Fyrir árið 2017 var endurgreiddur kostnaður Andrésar 292.297 krónur og hefur það lítið breyst á liðnum árum. Andrés eyðir til að mynda litlu í flugferðir og námu ferðir með leigubílum á árinu 2019 ekki nema rúmlega níu þúsund krónum og fór sambærileg upphæð í slíkan ferðamáta árið áður. Til samanburðar hlaut Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hátt í fimm milljónir í aksturspeninga á mánuði.
Andrés lagði fram þingsályktunartillögu sem að hans sögn gæti fækkað óvæntum og hættulegum hjartaáföllum. „Ef fólk fær hjartaáfall ungt verði nánustu ættingjum þess boðin skoðun til að greina hvort þeir séu í áhættuhópi. Með því að greina sjúkdóminn snemma er oft hægt með einföldum aðferðum að komast hjá því að hann valdi óvæntu hjartaáfalli síðar meir,“ sagði Andrés um umrædda tillögu og tók fram að árlega fái um fjörutíu manns sitt fyrsta hjartaáfall fyrir fimmtíu ára aldurinn, þarf af um sjö undir fertugu.
„Hjartaáföll hjá yngra fólki má oft rekja til arfgengra sjúkdóma, þar sem arfgeng blóðfituhækkun er algengust. Slíka hækkun er auðvelt að greina og meðhöndla,“ sagði hann.
Í vetur spurði Andrés dómsmálaráðherra út í lögskilnaði. Þetta gerði hann í kjölfar frétta af þolendum ofbeldis sem reyndist erfitt að losna úr hjónabandi við gerandann. Andrés segir vera fulla ástæðu til að endurskoða hjúskaparlög og líta þá til fordæma í löggjöf hinna Norðurlandanna.
„Mér þykir við fyrstu sýn liggja nokkuð beint við að fella skilnað að borði og sæng úr lögum. Ef fólk hættir að vilja vera í hjúskap geti ríkið bara treyst því til að meta það sjálft án þess að bæta þessum millileik inn í ferlið,“ sagði Andrés.
Árið 2017 fór þingmaðurinn fram á lækkun kosningaaldurs með frumvarpi, en þar tók Andrés fram að aldursmörk kosningarréttar í sveitarstjórnarkosningum yrði við 16 ára aldur í stað 18. Með slíkri breytingu myndu þá hátt í níu þúsund manns hafa áhrif á samfélagið sem njóta annars ekki þessara grundvallarréttinda lýðræðisins að óbreyttum lögum. Frumvarpið var jafnframt lagt fram sem lausn við dræmri og dvínandi þátttöku ungs fólks í kosningum til löggjafarþinga og sveitarstjórna. Það valdi áhyggjum af framtíð lýðræðis, eins og Andrés sagði.
Andrés er kvæntur Rúnu Vigdísi Guðmarsdóttur, ráðgjafa hjá RANNÍS og fyrrverandi starfsmanni hjá framkvæmdastjórn ESB. Saman eiga þau tvö börn, soninn Halldór og dótturina Rögnu.
Andrés er gífurlega virkur á samfélagsmiðlum sínum og hefur í ófá skipti deilt áhuga sínum á hinu stórvinsæla fyrirbæri frá Japan sem kallast Pokémon. Andrés var virkur í leit að slíkum dýrum þegar símaleikurinn Pokémon Go tröllreið öllu hér um árið. Það hefur ekki farið fram hjá hörðustu fylgjendum Andrésar að hann er sérstaklega elskur að letidýrinu Snorlax.
Sorgarfréttir. pic.twitter.com/NBJlX5xBED
— Andrés Ingi (@andresingi) June 16, 2019
Er að reyna að fylgjast með umræðu um þungunarrof úr hliðarsal en það skyggir einhver á útsýnið. pic.twitter.com/BIrfVuu8QE
— Andrés Ingi (@andresingi) May 7, 2019