fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Eyjan

Uppfært 16. nóv: Blaðamannafélagið stefnir Árvakri – Þetta eru verkfallsbrjótarnir

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 15. nóvember 2019 11:18

Hjálmar Jónsson, formaður BÍ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Blaðamannafélag Íslands hefur stefnt Árvakri, sem gefur út Morgunblaðið, fyrir félagsdóm vegna verkfallsbrota síðastliðinn föstudag meðan á verkfallsaðgerðum BÍ stóð yfir.

Málið verður þingfest næstkomandi þriðjudag. Í dag hefst önnur lota vinnustöðvunar BÍ og mun hún standa í átta klukkustundir, en sáttafundur í gær skilaði ekki árangri.

Brotin voru framin af níu einstaklingum og eru í yfir 20 liðum, en krafist er viðurkenningar á brotunum og greiðslu sektar.

Þeir einstaklingar sem sagðir eru verkfallsbrjótar eru eftirfarandi:

  • Auðun Georg Ólafsson, fréttastjóri K100
  • Stefán Einar Stefánsson, fréttastjóri viðskiptafrétta
  • Baldur Arnarsson, blaðamaður
  • Aron Þórður Albertsson, námsmaður (utan stéttarfélags)
  • Þóra Kolbrá Sigurðardóttir, umsjónarmaður matarvefs
  • Ásgeir Ingvarsson, blaðamaður utan stéttafélags

Uppfært: 16. 11. 2019, klukkan 17.02:

Ranglega ásakaðar um verkfallsbrot

Þrjár blaðakonur eru ranglega ásakaðar um verkfallsbrot í stefnu Blaðamannafélags Íslands gegn Árvakri vegna verkfallsbrota á mbl.is í verkfalli félagsins föstudaginn 8. nóvember sl. Blaðakonurnar höfðu lagt niður störf, en fréttir voru birtar í þeirra nafni meðan á verkfallinu stóð.

BÍ hefur falið lögmanni sínum að laga stefnuna að þessum staðreyndum. Blaðakonurnar eru beðnar afsökunar á því að hafa ranglega verið dregnar inn í málsrekstur vegna verkfallsbrotanna. Árvakur verður krafinn skýringa á því hver beri ábyrgð á og hafi staðið á bak við birtingu fréttanna að blaðakonunum forspurðum á meðan vinnustöðvunin stóð yfir.

Blaðakonurnar sem um ræðir eru Guðrún Selma Sigurjónsdóttir, Sonja Sif Þórólfsdóttir og Lilja Ósk Sigurðardóttir. Er hér með ítrekuð afsökunarbeiðni til þeirra fyrir að hafa að ósekju dregið þær inn í ásakanir um lögbrot sem þær bera enga ábyrgð á.

„Í dag (gær) lagði ég niður störf kl. 10.00 og stimplaði mig út rétt eins og síðasta föstudag, enda í verkfalli,“ segir Guðrún Selma í tölvupósti til félagsins. Ég styð að sjálfsögðu kollega mína heilshugar og myndi aldrei framkvæma verkfallsbrot,“ segir Lilja Ósk og Sonja Sif segir: „Ég myndi aldrei vinna gegn baráttu sem ég styð. Það er verið að berjast fyrir mínum kjörum í framtíðinni.“

Árvakur hélt uppteknum hætti í vinnustöðvun Blaðamannafélagsins í gær og ríflega 40 fréttir birtust meðan á verkfallinu stóð milli klukkan 10 og 18. Árvakur er eina fyrirtækið sem brýtur gegn vinnustöðvuninni, en framkvæmd hennar var til fyrirmyndar á Sýn, RÚV og Fréttablaðinu. Aflað verður frekari gagna um þessi brot og verður þeim bætt við þau gögn sem lögð verða fram í Félagsdómi við þingfestingu málsins á þriðjudaginn kemur.

Lög um stéttarfélög og vinnudeilur eru afdráttarlaus hvað þetta snertir, en þar segir: „Þegar vinnustöðvun hefur verið löglega hafin, er þeim, sem hún að einhverju leyti beinist gegn, óheimilt að stuðla að því að afstýra henni með aðstoð einstakra meðlima þeirra félaga eða sambanda, sem að vinnustöðvuninni standa.“

Þarna er því á ferðinni óvenju einbeittur brotavilji, sem Árvakur er einn um og deilir ekki með öðrum aðilum að kjaradeilunni. Dapurlegt viðhorf til réttar fólks til að framfylgja kröfum sínum með löglega boðuðum aðgerðum.

Hjálmar Jónsson,

formaður BÍ

Hér að neðan má sjá þær fréttir sem blaðamennirnir unnu meðan á verkfallsaðgerðunum stóð:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki