fbpx
Mánudagur 09.júní 2025
Fréttir

Hvað er Pepes Pizza? – Dularfyllsti pizzastaður Reykjavíkur

Staðurinn virðist ekki vera til en er samt með sjö þúsund fylgjendur á Facebook

Hjálmar Friðriksson
Þriðjudaginn 20. júní 2017 13:47

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það eru sennilega fáir veitingastaðir á Íslandi sem fá betri einkunn á Facebook en pizzastaðurinn Pepes Pizza en 22 Íslendingar hafa gefið veitingastaðnum fimm stjörnur. Ríflega sjö þúsund manns hafa „lækað“ síðu veitingastaðarins sem sagður vera miðsvæðis skammt frá Reykjavíkurflugvelli.

Vandamálið er að Pepes Pizza virðist aldrei hafa verið til. Athygli var beint á þennan gerviveitingastað í Facebook-hópnum Besti bitinn, umræðuvettvangi fyrir íslenska sælkera. Þar bendir einn á að Pepe sé vinsælt mem (e. meme) meðal rasista og aðdáenda Donald Trump. Líkt og DV hefur fjallað um hefur nýnasistahreyfingin Alt-right reynt að gera froskinn Pepe að merki sínu.

Sú kenning er fremur langsótt þar sem það var árið 2015 sem teiknimyndafroskurinn fór að verða vinsæll meðal nýnasista. Facebook-síða Pepes Pizza hefur hins vegar verið virk í um fimm ár og er líkt og fyrr segir með talsverðan fjölda fylgjenda. Nýjasta færslan á Facebook-síðu Pepes Pizza er frá 22. maí síðastliðnum þar sem vakin er athygli á því að „veitingastaðnum“ hafi borist ferskar ólívur með sendingu frá Ítalíu og því væri tilboð á pizzum með ólífum. Síðan virðist hafa verið stofnuð þann 30. nóvember árið 2012.

DV gerði tilraun til að ná tali af síðuhaldara og fékk einungis sjálfvirkt svar á Facebook þar sem greint var frá opnunartímum. „Við bjóðum upp á veitingaþjónustu fyrir fólk á öllum aldri á sanngjörnu verði. Við erum stödd miðsvæðis skammt frá Reykjavíkurflugvelli. Hafir þú frekari fyrirspurnir eða ábendingar skaltu ekki hika við að hringja í síma: 5788888 eða senda fleiri skilaboð á þessa línu,“ segir í þeim skilaboðum.

Símanúmerið sem gefið er upp er hjá Pizzastaðnum Pizzan og ræddi DV við vaktstjóra í einu útibúi veitingastaðarins. Sá var forviða þegar hann var spurður út í Pepes Pizza. „Ég hef bara aldrei heyrt um þetta. Er þessi staður til?,“ segir vaktstjórinn og bættir við að Pizzan hafi verið með þetta símanúmer frá árinu 2008.

Einn þeirra Íslendinga sem hafa gefið veitingastaðnum einkunn á Facebook er Olga Perla Nielsen. Hún gaf Pepes Pizza fimm stjörnur árið 2014 og skrifaði: „Jamm jamm“. Í samtali við DV segir Olga að hún hafi aldrei borðað á Pepes Pizza og var jafn furðulostin og vaktstjórinn á Pizzunni. „Er þetta ekki eitthvað „scam“? Það heitir enginn staður þetta,“ segir Olga.

Árið 2014 spyr einn Facebook-notandi í athugasemd hvar Pepes Pizza sé til húsa. Ekki stendur á svari og sagt að Pepes Pizza sé við Arnargötu í Vesturbænum, skráð til húsa í einbýlishúsi.

Ein sterkasta vísbendingin um að Facebook-síðan sé einhverskonar glens eru nöfn starfsmanna Pepes Pizza, en þau má finna í umsögn „veitingastaðarins“: „Pepe, Pípí ,Papa, Paupau og Pípa“.

Ráðgátan um Pepes Pizza er þó enn óleyst.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þekktir hlaupa í Hengil Ultra stærsta utanvegahlaupi landsins

Þekktir hlaupa í Hengil Ultra stærsta utanvegahlaupi landsins
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Greiðslufyrirkomulag við sölu Perlunnar enn gagnrýnt – Segja um verulegan afslátt að ræða

Greiðslufyrirkomulag við sölu Perlunnar enn gagnrýnt – Segja um verulegan afslátt að ræða
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Jón tekur upp hanskann fyrir múslimana á Keflavíkurflugvelli – „Sé ekki að þessir karlangar hafi brotið neitt af sér“

Jón tekur upp hanskann fyrir múslimana á Keflavíkurflugvelli – „Sé ekki að þessir karlangar hafi brotið neitt af sér“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Húsfélagið í vanda vegna þess að einn „nískupúki“ stöðvar allt – „Hann mætir á enga húsfundi og vill aldrei staðfesta neinar framkvæmdir“

Húsfélagið í vanda vegna þess að einn „nískupúki“ stöðvar allt – „Hann mætir á enga húsfundi og vill aldrei staðfesta neinar framkvæmdir“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Landfari opnar nýtt þjónustuverkstæði og frumsýnir nýjan rafmagnsvörubíl

Landfari opnar nýtt þjónustuverkstæði og frumsýnir nýjan rafmagnsvörubíl
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Herkastalinn seldur á 865 milljónir – Bætist í myndarlegt og sístækkandi eignasafn Bergeyjar

Herkastalinn seldur á 865 milljónir – Bætist í myndarlegt og sístækkandi eignasafn Bergeyjar