fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Vilja taka á ólöglegri skammtímagistingu

Trausti Salvar Kristjánsson
Föstudaginn 26. janúar 2018 19:18

Þátttakendur á ráðstefnunni frá borgum þar sem ferðamönnum hefur fjölgað ört á síðustu árum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þátttakendur á ráðstefnunni frá borgum þar sem ferðamönnum hefur fjölgað ört á síðustu árum

Borgir í Evrópu vilja nýta sér aðgang að rafrænum gögnum til að herða eftirlit með og koma reglum yfir ólöglega ferðamannagistingu. Þetta kom fram á blaðamannafundi ráðstefnu í Amsterdam í dag sem Sigurður Björn Blöndal, formaður borgarráðs, hefur setið og haldið erindi.

Reykjavíkurborg var boðið að taka þátt í ráðstefnunni sem haldin er undir yfirskriftinni Amsterdam Holiday Rental Conference. Á ráðstefnunni er sérstaklega fjallað um hvernig borgir geta unnið saman að því að koma í veg fyrir ólöglega gististarfsemi og að farið sé að settum reglum varðandi heimagistingu og aðra skammtímagistingu. Amsterdam hefur að mörgu leyti verið leiðandi í því að koma böndum á ólöglega gistingu í íbúðahverfum en þar hefur sérstakt teymi frá borginni unnið með lögreglunni og eldvarnareftirliti, að því að loka ólöglegum gististöðum og það hefur komið fyrir að ferðamenn hafi þurft að yfirgefa slíkt gistihúsnæði. Í Amsterdam líkt og í Reykjavík hefur íbúðaverð hækkað mikið á ákveðnum svæðum á meðan íbúum hefur fækkað vegna þess að íbúðarhúsnæði er notað alfarið í útleigu til ferðamanna.

Sama er uppi á teningnum í öðrum borgum í Evrópu þar sem ferðamannaiðnaður hefur vaxið hratt, m.a. Barcelona, París, Vín, Kaupmannahöfn, Brussel, Lissabon, Krakow og Madríd en fulltrúar allra þessara borga taka þátt í ráðstefnunni.

Tilgangur ráðstefnunnar er að deila þekkingu auk þess sem umræða skapaðist um að borgirnar taki sig saman með að beina erindi til Evrópusambandsins um regluverk varðandi skammtímagistingu. Amsterdam safnar ítarlegum gögnum af vefsíðum sem bjóða upp á heimagistingu í borginni til að fást við vandamálið. Er líklegt að Reykjavík muni nýta sér slíka gagnaöflun í framtíðinni. Þá beitir Amsterdamborg þá sem brjóta reglurnar háum sektum og lokar jafnvel húsnæði.

Á Íslandi er aðeins heimilt að reka heimagistingu í íbúðarhúsnæði, að undangenginni skráningu, í skilgreindum íbúðahverfum í 90 daga á ári eða upp að ákveðnu tekjuhámarki sem miðast við ca. tvær milljónir króna.

Með í för með formanni borgarráðs er samninganefnd Reykjavíkurborgar við Airbnb sem er skipuð Helgu Björk Laxdal, Ebbu Schram og Hrólfi Jónssyni ásamt ráðgjafa nefndarinnar,Tómasi Hrafni Sveinssyni hrl.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein
Eyjan
Fyrir 1 viku

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins