

Það fór fram stórleikur í ensku úrvalsdeildinni í gær er lið Arsenal heimsótti Manchester United.
Það var boðið upp á fínasta leik á Old Trafford en bæði lið þurftu þó að sætta sig við stig.
Fyrsta mark leiksins skoraði Scott McTominay fyrir United í fyrri hálfleik með frábæru skoti sem Bernd Leno réð ekki við.
Staðan var 1-0 eftir fyrri hálfleikinn en í þeim síðari jafnaði Pierre-Emerick Aubameyang metin fyrir Arsenal.
Mark Aubameyang var upphaflega flautað af vegna rangstöðu en VAR kom til bjargar og fékk það að standa.
Bæði lið fengu ágætis færi til að bæta við mörkum en fleiri urðu þau ekki og lokastaðan, 1-1.
Þetta þýðir að United er aðeins með níu stig eftir sjö leiki sem er versti árangur liðsins í 30 ár.
United hefur ekki byrjað eins illa síðan 1989 og er byrjað að hitna undir Ole Gunnar Solskjær.
Manchester United’s worst start to a league season in 30 years ? #MUNARS pic.twitter.com/y88lTKpqzm
— Match of the Day (@BBCMOTD) 30 September 2019