

Það er stórleikur í ensku úrvalsdeildinni í kvöld þegar Manchester United og Arsenal eigast.
Þessi stórveldi ganga í gegnum erfiða tíma og erfitt að sjá fyrir endann á þeim.
Ole Gunnar Solskjær ákvað að taka til í leikmannahópi Manchester United í sumar, hann gat ekki fyllt í öll skörð. United er með þunnan hóp en það gæti kostað Solskjær starfið.
Eiður Smári Guðjohnsen, sérfræðingur Símans um enska boltann spáir því að Solskjær verði rekinn á næstu vikum.
Tómas Þór Þórðarson, sérfræðingur enska boltans spurði Eið Smára hvort Solskjær myndi lifa í starfi, út tímabilið? „Nei,“ sagði Eiður Smári og fór ekki nánar út í það.
Eiður Smári lék undir stjórn Solskjær hjá Molde en hans gamli vinur þarf þá að finna sér nýtt í starf.
Ummæli Eiðs má heyra hér að neðan.
„Nei,“ sagði Eiður Smári.