fbpx
Föstudagur 04.júlí 2025
Fókus

Scooter á leiðinni til landsins – Dj Muscleboy hitar upp

Fókus
Mánudaginn 9. september 2019 11:27

Myndin er samsett

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þýsku tæknótröllin í Scooter eru á leiðinni til landsins í þriðja sinn og að þessu sinni ætla þeir að halda risatónleika í Laugardalshöllinni þann 26. október næstkomandi í samstarfi við FM957 og Krombacker.

Scooter kom til Íslands í fyrsta skipti í apríl árið 2004 og héldu einnig tónleika í Laugardalshöll fyrir stútfullum sal. Meðlimir sveitarinnar lofa enn kröftugri tónleikum í þetta skiptið og þeir segjast vera spenntir að koma aftur og skemmta Íslendingum.

FM957 mun vinna náið með Scooter til að gera þessu veislu eftirminnilega á allan hátt, hljóð, ljós og annar búnaður verða í sérflokki ásamt sprengjum, leysigeislum og miklum hamagang.

Scooter verður með gesti með sér sem eru ekki að verri endanum Rikki G mun koma mannskapnum í góðan gír, Club dub munu hita upp ásamt því að Dj Muscleboy og félagar munu keyra partýið upp áður en Scooter mætir á svæðið og rífur þakið af Laugardalshöllinni.

Það má gera ráð fyrir því að tónleikarnir verði gífurlega flottir enda eru tónleikar Scooter mikið fyrir augað og má búast við því að sjá sprengingar, ljósadýrð og dansara á sviðinu.

Scooter býr yfir miklu magni af vinsælum lögum en það vinsælasta er án efa The Logical Song en það lag er með yfir 44 milljónir spilana á Spotify.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

David endar á Ítalíu
Fókus
Í gær

Sjaldséð sjón: Goðsögn frá sjöunda áratugnum mætti á rauða dregilinn

Sjaldséð sjón: Goðsögn frá sjöunda áratugnum mætti á rauða dregilinn
Fókus
Í gær

Aðdáendur agndofa eftir að leikkonan birti mynd af sér með ketti sínum – „Þetta er ekki í lagi“

Aðdáendur agndofa eftir að leikkonan birti mynd af sér með ketti sínum – „Þetta er ekki í lagi“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Klæddist svörtum litlum kjól á 76 ára afmælisdaginn

Klæddist svörtum litlum kjól á 76 ára afmælisdaginn
Fókus
Fyrir 3 dögum

Arnmundur Ernst um móðurmissinn: „Það vissu allir hvað við vorum að ganga í gegnum“

Arnmundur Ernst um móðurmissinn: „Það vissu allir hvað við vorum að ganga í gegnum“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Guðrún og Árni ræða um nekt og svara vinsælli spurningu: „Hvað ef ég fæ bóner?“

Guðrún og Árni ræða um nekt og svara vinsælli spurningu: „Hvað ef ég fæ bóner?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vikan á Instagram – Ber að ofan í „Sexico“

Vikan á Instagram – Ber að ofan í „Sexico“