fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Eyjan

Fulltrúi Bjarna Ben samþykkti Höskuldarmilljónirnar 150 án athugasemda: „Slær mann sem ótrú­legt bruðl“

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 21. ágúst 2019 09:05

Kirstín Þ. Flygenring. Mynd-Arion banki

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kirstín Þ. Flygenring, fulltrúi Bankasýslu ríkisins í stjórn Arion banka, gerði engar athugasemdir árið 2017, við að Höskuldur Ólafsson, þáverandi bankastjóri Arion banka, fengi 150 milljónir króna við starfslok sín. Fréttablaðið greinir frá þessu í dag.

„Það slær mann sem ótrú­legt bruðl,“ sagði Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra um helgina, aðspurður um hvað honum þætti um upphæðina sem Höskuldur fékk við starfslok sín., en þess skal getið að það er þó fjármála- og efnahagsráðherra sem skipar fulltrúa Bankasýslunnar.Bjarni beindi árið 2017 sérstökum tilmælum til stjórna ríkisstofnanna að gæta hófs  og varkárni þegar samið væri um laun.

Fréttablaðið segist hafa heimildir fyrir því að breytingarnar á ráðningasamningnum hafi verið samþykktar samhljóða af stjórnarmönnum Arion banka. Kirstín sat þar fyrir hönd Bankasýslunnar, en ríkið átti þá 13 prósenta hlut í bankanum.

Breytingar voru gerðar á ráðningasamningi Höskuldar um mitt ár 2017 er tengdust uppsagnarfresti og samningi um starfslok, sem kostaði bankann 150 milljónir króna vegna launa, og launatengdra gjalda, en Höskuldur lét af störfum í apríl að eigin frumkvæði, að eigin sögn.

Arion banki segir í svari sínu til Fréttablaðsins að mikilvægt hafi verið að tryggja nauðsynlegan stöðugleika með breytingum á ráðningarsamningi Höskuldar:

„Markmiðið var að tryggja að bankinn nyti starfskrafta Höskuldar fram að hlutafjárútboði og skráningu og í framhaldi af henni. Fyrir lá að það hefði einfaldlega skaðað og tafið útboðs- og skráningarferli bankans ef mannabreytingar yrðu bæði á stöðu stjórnarformanns og bankastjóra svo skömmu fyrir fyrirhugaða skráningu. Miklir hagsmunir voru í húfi og mat sú stjórn sem þá sat það afar mikilvægt að tryggja nauðsynlegan stöðugleika með því að gera breytingar á ráðningarsamningi bankastjóra.“

Fréttablaðið segir að Arion banki viðurkenni að kjör Höskuldar hafi „vissulega verið óvenjuleg“ en aðstæður hafi verið óvenjulegar einnig, í ljósi skráningar bankans á markað og nauðsyn þess að tryggja stöðuleika í æðstu stjórnunarstöðum í ferlinu.

Hinsvegar varð ekkert af hinu fyrirhugaða  útboði og skráningu haustið 2017, þegar þáverandi ríkisstjórn liðaðist í sundur, heldur gekk skráningin í gegn ári síðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir