fbpx
Sunnudagur 06.júlí 2025
Pressan

Borðaðu meira grænmeti og minna kjöt ef þú vilt lifa lengur

Pressan
Sunnudaginn 6. júlí 2025 07:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það að borða meira grænmeti og minna kjöt er lykillinn að því að lifa lengur ef miða má við niðurstöður rannsóknar bandarískra vísindamanna. Samkvæmt þeim eru 16% minni líkur á að fólk fái hjartasjúkdóma og 25% minni líkur á ótímabærum dauða ef fólk heldur sig eingöngu við grænmetisfæði eða mataræði þar sem meira magns grænmetis er neytt en kjötafurða.

Niðurstöður rannsóknarinnar voru birtar í vísindaritinu Journal of the American Heart Association. Casey Rebholz, aðalhöfundur rannsóknarinnar, segir að niðurstöðurnar styrki fyrri niðurstöður um að það sé gott fyrir heilsu hjartans að borða mikið grænmeti og dragi úr líkum á ótímabærum dauða. Með grænmeti telja vísindamenn ávexti, heilhveiti, belgjurtir og hnetur að hennar sögn. Undir kjötflokkunina fellur auðvitað kjöt, egg, mjólkurvörur og sjávarfang.

12.168 miðaldra Bandaríkjamenn tóku þátt í rannsókninni. Í henni var horft til hversu oft þátttakendurnir borðuðu grænmeti en ekki var gerð krafa um að þátttakendur útilokuðu kjöt úr mataræði sínu. Heilsufar þátttakenda frá 1987 til 2016 var rannsakað. Enginn þeirra var með hjartasjúkdóma í upphafi rannsóknarinnar. CNN skýrir frá þessu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Japanir sárir út í Trump eftir að hann líkti árásunum á Íran við kjarnorkuárásina á Hirsoshima

Japanir sárir út í Trump eftir að hann líkti árásunum á Íran við kjarnorkuárásina á Hirsoshima
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ævilangt fangelsi fyrir að myrða skólapilt með sveðju

Ævilangt fangelsi fyrir að myrða skólapilt með sveðju
Pressan
Fyrir 3 dögum

Microsoft segir að gervigreind sé betri en læknar við að greina flókinn heilsufarsvanda

Microsoft segir að gervigreind sé betri en læknar við að greina flókinn heilsufarsvanda
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Ég ætla ekki að deyja hér“: Missti útlimi í skelfilegu slysi í túbunni í London – Sögð hafa valdið slysinu með eigin gáleysi

„Ég ætla ekki að deyja hér“: Missti útlimi í skelfilegu slysi í túbunni í London – Sögð hafa valdið slysinu með eigin gáleysi
Pressan
Fyrir 4 dögum

Nýr ferðamannaskattur vekur reiði – Borgaðu fyrir útsýnið

Nýr ferðamannaskattur vekur reiði – Borgaðu fyrir útsýnið
Pressan
Fyrir 4 dögum

Sýknaður af ákæru um njósnir rúmri hálfri öld eftir að hann var tekinn af lífi

Sýknaður af ákæru um njósnir rúmri hálfri öld eftir að hann var tekinn af lífi