fbpx
Mánudagur 30.júní 2025
Fókus

Íslenska auglýsingastofan tilnefnd til Effie verðlauna: Sjáðu myndböndin

Kristjón Kormákur Guðjónsson
Föstudaginn 28. apríl 2017 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslenska auglýsingastofan hefur hlotið tvær Effie verðlauna tilnefningar fyrir „Ask Guðmundur“ herferðina, sem er hluti af Inspired by Iceland herferð Íslandsstofu. Íslenska auglýsingastofan er fyrst íslenskra auglýsingastofa til að hljóta tilnefningu til þessara mikilvægu árángursverðlauna í keppninni í Norður Ameríku, en keppnin er haldin í stærstu heimsálfunum ár hvert.

Íslenska auglýsingastofan er tilnefnd í tveimur flokkum – annars vegar fyrir Travel & Tourism, þar sem hún etur kappi við Airbnb, og hins vegar David vs Goliath, en það er fyrir markaðssetningu í umhverfi þar sem samkeppni við stærri fyrirtæki og vörumerki er mikil.

[youtube https://www.youtube.com/watch?v=z8TUcWYDxjk&w=660&h=415]

Herferðin er orðin ein verðlaunaðasta ferðaþjónustuherferð heims og vann til að mynda nýverið fern gullverðlaun á evrópsku Effie hátíðinni, Grand Prix verðlaunin og Lúðurinn fyrir Herferð ársins og Stafrænar auglýsingar. Inspired by Iceland hefur í heild unnið yfir 20 gull og Grand Prix verðlaun á síðustu fimm árum og eru þá ótalin ýmis önnur verðlaun sem hún hefur hlotið.

Ask Guðmundur, The Human Search Engine, er samfélagsmiðladrifin herferð sem gerir notendum kleift að spyrja ólíka Íslendinga, sem allir bera nafnið Guðmundur eða Guðmunda, um Ísland, hefðir, náttúru og menningu. Sumum spurningum er svarað með sérstökum myndböndum sem dreift er á samfélagsmiðlum og má sjá þau á YouTube-rás Inspired by Iceland. Herferðin sem Íslenska hefur unnið í góðu samstarfi við The Brooklyn Brothers í London og útfærsla hennar byggir á samstarfi opinberra aðila og íslenskrar ferðaþjónustu og er Íslandsstofa framkvæmdaaðili.

[youtube https://www.youtube.com/watch?v=jfyd6RAeCgo&w=660&h=415]

Effie verðlaunin, sem sett voru á fót árið 1968, er ein virtustu auglýsingaverðlaun heimsins og eru dómnefndir skipaðar fagfólki með umfangsmikla markaðs- og auglýsingareynslu. Sérstaða Effie verðlaunanna felst ekki síst í því að þau verðlauna árangur herferða, ekki einungis útlit. North American Effie verðlaunin verða afhent 1. júní nk. í New York í Bandaríkjunum.

[youtube https://www.youtube.com/watch?v=Ctw9s0McHeI&w=660&h=415]

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Fór til kírópraktors og þá hófst martröðin

Fór til kírópraktors og þá hófst martröðin
Fókus
Fyrir 3 dögum

Móðir léttist um 38 kíló en vill vara aðra við – Svona borðar hún í dag

Móðir léttist um 38 kíló en vill vara aðra við – Svona borðar hún í dag
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Það er erfitt að elska einhvern og vera langt í burtu frá honum“

„Það er erfitt að elska einhvern og vera langt í burtu frá honum“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Neitaði fyrst að klæðast nammi G-strengnum en samþykkti það fyrir þessa upphæð

Neitaði fyrst að klæðast nammi G-strengnum en samþykkti það fyrir þessa upphæð
Fókus
Fyrir 5 dögum

„Heilbrigður“ 29 ára faðir vaknaði með kviðverk – Nokkrum vikum síðar var hann látinn og fjölskylda hans varar aðra við

„Heilbrigður“ 29 ára faðir vaknaði með kviðverk – Nokkrum vikum síðar var hann látinn og fjölskylda hans varar aðra við
Fókus
Fyrir 5 dögum

Leikari úr vinsælum þáttum rekinn í burtu eftir furðulega uppákomu

Leikari úr vinsælum þáttum rekinn í burtu eftir furðulega uppákomu