Alvarlegt umferðarslys varð á gatnamótum á Lambhagavegi í Reykjavík um hálfáttaleytið í kvöld, en þar var ekið á gangandi vegfaranda. Lögreglan og sjúkraflutningamenn héldu þegar á vettvang, en slysið átti sér stað u.þ.b. miðja vegu á milli Bauhaus og Mímisbrunns. Rannsókn slyssins er á frumstigi og getur lögregla ekki veitt frekari upplýsingar að svo stöddu, að því er segir í nýrri fréttatilkynningu um málið.
Í frétt mbl.is kemur fram að umferð um svæðið var lokað um stund. Vegfarandinn sem ekið var á var fluttur með sjúkrabíl á Landspítalann.