fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fókus

Kolbrún Baldursdóttir var tekin í yfirheyrslu um helgina

Kristjón Kormákur Guðjónsson
Laugardaginn 23. febrúar 2019 19:00

Yfirheyrslan

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kolbrún Baldursdóttir er oddviti Flokks fólksins í Reykjavík. Áður hafði hún starfað sem sálfræðingur í 25 ár og vildi hún með framboði sínu færa baráttuna gegn óréttlæti, mismunun og fátækt inn í sal borgarstjórnar. Hún er yngst af fjórum alsystkinum og á tvö hálfsystkini. Kolbrún er alin upp í Vesturbæ Reykjavíkur.

DV tók Kolbrúnu í yfirheyrslu og þar kom margt forvitnilegt í ljós.

Hjúskaparstaða og börn?

Ég er gift og á tvær uppkomnar dætur, önnur er hagfræðingur og hin lögfræðingur. Ég á tvo tengdasyni, annar er viðskiptafræðingur og hinn er sálfræðingur. Barnabörnin eru þrjú.

Uppáhaldssjónvarpsefni?

Léttir sakamálaþættir t.d. Barnaby og Blue Bloods. Einnig vandaðir þættir, t.d. eru margir breskir og danskir framhaldsþættir sem eru skemmtilegir. Ég þoli ekki að horfa á eitthvað ógeðslegt t.d. níð gagnvart börnum eða dýrum. Það veldur mér hugarangri og sorg og ég get þá ekki sofið.

Fyrsta minningin?

Ekki viss, getur verið að ég rugli saman frásögnum af mér sem ég hef heyrt og minningum. Mögulega þegar verið var að reyna að svæfa mig, en ég var með eitthvert vesen. Einnig þegar ég átti tveggja eða þriggja ára afmæli og bjó í Sólheimum og pabbi gaf öllum sleikjó. En þetta rennur allt saman.

Hvað er skemmtilegt?

Vera með börnunum mínum, tengdabörnum og umfram allt barnabörnunum. Ég er mjög heimakær, vil helst vera heima eða í bústaðnum með fjölskyldu minni. Finnst líka gaman á Tenerife. Síðan er skemmtilegt þegar maður stendur sig vel, vandar sig í verkum sínum og stendur með sjálfum sér, sama hvað gengur á, þá líður mér vel.

Hvað er leiðinlegt?

Mér leiðist óreiða og rugl, að hlusta á bull og afsakanir, t.d. þegar fólk er að koma sér undan ábyrgð. Það pirrar mig mjög og ég á erfitt með að þola það.

Fyrsta atvinnan?

Passa börn og svo vann ég á hóteli á Laugavatni í Héraðsskólanum í nokkur sumur og í gömlu gufunni á Laugavatni og eitt sumar í sundlauginni á staðnum. Mágur minn var hótelstjóri. Vann tvö sumur í Álafossi, söludeild. Allt sumarvinna. Fyrsta vinnan mín eftir að ég varð sálfræðingur var hjá Fangelsismálastofnun ríkisins, en þá fór ég í fangelsi landsins og ræddi við þá sem þar voru.

Hvort er skemmtilegra að vera borgarfulltrúi eða sálfræðingur?

Það er mjög ólíkt, allt annars eðlis, en ég get nýtt reynslu sem sálfræðingur til 30 ára í borgarmálunum. Borgarmálin reyna meira á þolrifin. Að vera í minnihluta er oft afar erfitt þegar maður hefur enga leið til að koma málum áleiðis og mætir iðulega óbilgirni, hroka og jafnvel valdníðslu.

Kostir?

Kostir mínir eru sennilega stundum gallar og öfugt. En ég er samviskusöm, allt sem ég geri tek ég alla leið og á það til að klára sjálfa mig. Ég hætti ekki þótt ég sé úrvinda ef þarf að klára eitthvað. Verði ég hugfangin af einhverjum verkefnum þá gleymi ég alveg stað og stund og að eiga sjálf eitthvert líf, það kemst ekkert annað að hjá mér. Ég hef mikinn metnað fyrir fólkið sem ég vinn fyrir og það stoppar mig ekkert ef ég sé færi á að ná árangri. Þetta er hrútseðlið í mér en ég er fædd í mars. Ég skal, ég ætla og kemst oft yfir ótrúlegar hindranir. Þrautseig út yfir gröf og dauða, er að springa úr réttlætiskennd, er áræðin og hreinskilin, stundum of hreinskilin sennilega að mati einhverra.

Lestir?

Get verið stjórnsöm, er verkstjóri í mér. Ég hef alltaf tekið frumkvæði frá því ég var lítil, enda þurfti maður þá bara að bjarga sér og mér finnst að aðrir eigi að vera eins, fórni sér í verkefnin sem þeim eru falið og treyst fyrir, en það gengur auðvitað ekki.

Trúir þú á drauga?  

Já, og hef stundum óskað þess að ég gæti séð smávegis svoleiðis. Ég er mjög forvitin og vil líka vita hvað er þarna hinum megin, helst áður en ég fer þangað.

Stærsta augnablikið?

Þegar ég eignaðist dætur mínar, þegar barnabörnin fæddust og nóttin sem ég varð borgarfulltrúi var ógleymanleg. Svo eru nokkrir aðrir hápunktar.

Mestu vonbrigðin?

Ef ég er hreinskilin þá hefði ég viljað eignast hóp af börnum en beið of lengi. Ég varð eitt sinn fyrir miklum sárindum á vinnustað fyrir löngu sem settu á mig mark. Það voru oft vonbrigði í bernsku, ég bjó við alkóhólisma foreldris, fátækt og um tíma heimilisofbeldi. Lágt sjálfsmat og brotin sjálfsmynd fylgdi mér lengi fram eftir, en metnaðargirni til að ná árangri í því sem ég tók mér fyrir hendur varð yfirsterkari og löngunin til að hjálpa fólki kom mjög snemma.

Mikilvægast í lífinu?

Það styttist í 60 árin og þá lítur maður til afkomendanna og skynjar svo sterkt að ekkert annað skiptir í raun máli og einnig hverju maður hefur áorkað, hvað skilur maður eftir, að líf manns hafi haft einhvern tilgang fyrir aðra og umhverfið.

Áttu gæludýr?

Ég á Smugu, sem er tíu ára lítill púðli sem ég elska óendanlega. Hún er með æxli við hjarta og í hvert sinn sem ég hugsa um það, fæ ég sting í magann.

Ljóð eða skáldsaga?

Afi minn var ljóðskáld, sr. Sigurður Einarsson kenndur við Holt. Finnst margt fallegt eftir hann. Svo er það Páll Ólafsson sem orti svo fallega til konu sinnar.

Eitthvað að lokum?

Bara muna að lífið og heilsan eru dýrmætar gjafir, ég vil reyna að gera sem mest úr mínu lífi og tilveru, vinna í þágu sem flestra og ekki síst þeirra sem minna mega sín, barnanna, öryrkja og eldri borgara. Ég vil berjast gegn fátækt. Hér á landi á enginn að þurfa að vera fátækur eða líða skort.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður
Fókus
Í gær

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra
Fókus
Fyrir 3 dögum

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta