Nú vinna starfsmenn sveitarfélaga hörðum höndum að því að hlaða í áramótabrennur. Yfir 90 brennur verða haldnar um allt land á gamlárskvöld. Sextán brennur verða á höfuðborgarsvæðinu og er eldur borinn að þeim flestum kl. 20.30 á gamlárskvöld. Á því eru þó nokkrar undantekningar, á Úlfarsfelli er tendrað kl. 15.00 um daginn og í Skerjafirði er eldur borinn að kestinum kl. 21.00 eftir blysför sem hefst kl. 20.30.
Líkt og áður er sjaldnast formleg dagskrá á brennunum en hvetur Reykjavíkurborg fólk til að rifja upp álfasöngvana og mæta með góða skapið.
Reykjavík
Við Suðurhlíðar, neðan við Fossvogskirkjugarð kl. 20:30.
Geirsnef kl. 20:30.
Við Suðurfell kl. 20:30.
Við Ægisíðu kl. 20:30.
Gufunes við gömlu öskuhaugana kl. 20:30.
Skerjafjörður gegnt Skildinganesi 48 – 52 kl. 21. (Blysför kl. 20:30)
Vestan Laugarásvegar móts við Valbjarnarvöll. kl. 20:30
Fylkisbrennan, við Rauðavatn. kl. 20:30.
Kjalarnes
Kléberg á Kjalarnesi, lítil brenna. kl. 20:30
Hafnarfjörður
Ásvellir, við Tjarnarvelli 7 kl. 20:30
Seltjarnarnes
Valhúsahæð. kl. 20:30
Kópavogur
Kópavogsdalur við Smárahvammsvöllur 20:30 (Flugeldasýning kl. 21:10)
Í Vatnsenda fyrir ofan Gulaþing 20:30
Álftanes
Á bökkunum við Tröð.
Mosfellsbær
Í Ullarnesbrekkum við hesthúsahverfið. Bálið tendrað kl. 20:00
Garðabær
Við Sjávargrund. kl. 21:00
Akureyri
Við Réttarhvamm
Egilsstaðir
Á nesinu vestan við Kirkjuna á Egilsstöðum. kl.16:30
Hægt verður að koma með efni á brennurnar í dag. Best er að fá hreint timbur á brennurnar. Stærstur hluti þess sem fer á brennurnar eru vörubretti en einnig er fenginn afgangur af jólatréssölunni. Plast, gúmmí og unnið timbur á ekki erindi í köstinn. Hætt verður að taka á móti efni þegar þær eru orðnar hæfilega stórar eða í síðasta lagi kl. 12.00 á gamlársdag. Stærð brennanna ræðst meðal annars af mati Eldvarnareftirlitsins á aðstæðum á hverjum stað.
Fólk er hvatt til að skjóta ekki upp flugeldum við brennurnar og minnt er á hlífðargleraugu og hanska. Einnig skal minnt á að bannað er að kveikja sína eigin áramótabrennu.