fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
Pressan

Átök við landamæri Mexíkó og Bandaríkjanna – 500 innflytjendum verður vísað frá Mexíkó

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 26. nóvember 2018 05:15

Fólk að reyna að komast yfir bandarísku landamærin við Mexíkó. Skjáskot/YouTube

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Til átaka kom á milli innflytjenda og mexíkóskra lögreglumanna við landamæri Mexíkó og Bandaríkjanna í gær þegar innflytjendurnir reyndu að komast til Bandaríkjanna. Bandarískir landamæraverðir skutu táragasi að að innflytjendunum. Mexíkósk yfirvöld segjast ætla að vísa um 500 innflytjendum frá Mið-Ameríku úr landi eftir að þeir reyndu á „ofbeldisfullan“ og „ólögmætan“ hátt að komast í gegnum girðingu á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó.

Sky segir að mörg hundruð innflytjendur hafi gert atlögu að landamærunum við Tijuana og Kaliforníu í gær til að þrýsta á bandarísk stjórnvöld að hlýða á mál þeirra og taka hælisumsóknir þeirra til greina. Mexíkóskir lögreglumenn náðu síðan stjórn á ástandinu.

Mexíkósk stjórnvöld segjast ekki ætla að senda herinn að landamærunum til að hafa stjórn á mörg þúsund innflytjendum sem þar hafa safnast saman í þeirri von að þeir geti komist til Bandaríkjanna.

Bandaríkjamenn lokuðu öllum löglegum leiðum yfir landamærin í framhaldi af þessu. Slíkar lokanir hafa víðtæk áhrif því tugir þúsunda Mexíkóa sækja vinnu í Bandaríkjunum og fara daglega yfir landamærin til vinnu sinnar. Þá treysta bandarískir vinnuveitendur á þá og því koma lokanir sem þessar sér mjög illa beggja meginn landamæranna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fundarhöld um helgina
Pressan
Fyrir 2 dögum

Umfangsmiklar aðgerðir gegn trúarsamtökum sem kenna sig við ljós og frið – Ásakanir um kynferðisbrot, nauðungarhjónaband og þrælahald

Umfangsmiklar aðgerðir gegn trúarsamtökum sem kenna sig við ljós og frið – Ásakanir um kynferðisbrot, nauðungarhjónaband og þrælahald
Pressan
Fyrir 3 dögum

Á yfir höfði sér þunga refsingu fyrir að sleikja rör

Á yfir höfði sér þunga refsingu fyrir að sleikja rör
Pressan
Fyrir 3 dögum

Leikarinn dæmdur í lífstíðarfangelsi

Leikarinn dæmdur í lífstíðarfangelsi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Varalesari varpar ljósi á viðvörun Trumps til Karls – „Við ræðum þetta síðar“

Varalesari varpar ljósi á viðvörun Trumps til Karls – „Við ræðum þetta síðar“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var
Pressan
Fyrir 5 dögum

Leiðbeiningar til kvenna – Svona sleppurðu við að elda matinn

Leiðbeiningar til kvenna – Svona sleppurðu við að elda matinn