

„Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ástu Kristínu Aðalsteinsdóttur sem er fædd 1997. Síðast er vitað um Ástu í Síðumúla um kl. 13:30 í dag.“
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. Þar segir jafnframt:
„Ásta var þá klædd í hvíta Nike hettupeysu, svarta 66°N úlpu með loðkraga, svartar buxur og svarta skó. Ásta er með ljóst aflitað hár auk hárlenginga, lokk í nefi og eru neglur hennar með bleiku naglalakki. Ásta er 172 cm á hæð, þéttvaxin og sólbrún.“
Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Ástu eru beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 112.“