

Thomas Møller Olsen sagði fyrir Landsrétti í dag að hann hafi þrifið rauða Kio Rio-bílinn vegna þess að Grænlendingar séu mikið fyrir hreinlæti. Thomas Møller var dæmdur í 19 ára fangelsi fyrir morðið á Birnu Brjánsdóttur, hann neitar fyrir það og skellir skuldinni á skipsfélaga sinn Nikolaj Olsen. Sagði Thomas Møller einnig að hann hefði horft á stjörnurnar þegar Nikolaj hafi keyrt á brott nóttina sem Birna lést, benti saksóknari á að það hefði verið skýjað þá nótt.
Vísir greinir frá því að Thomas haldi því fram að lögregla hafi beitt sig harðræði og því hafi frásögn hans breyst á milli þess að hann var yfirheyrður og fyrir héraðsdómi. Leifur Halldórsson rannsóknarlögreglumaður hafnaði því og benti á að verjandi Thomasar í héraði hefði aldrei gert athugasemdir við skýrslutökur lögreglu.
Aðspurður um hvers vegna hann hafi þrifið bílinn sagði Thomas: „Við Grænlendingar erum hreinlætisfólk, ég þurfti að skila bílnum hreinum.“ Fram kom í dómi héraðsdóms að blóð hefði fundist í bílnum.