fbpx
Sunnudagur 10.maí 2026
Fréttir

Thomas Møller fyrir Landsrétti – Neitar staðfastlega að eiga úlpuna

Ritstjórn DV
Mánudaginn 29. október 2018 10:26

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aðalmeðferð í máli Thomasar Møller Olsen fer fram í Landsrétti í dag. Hinn þrítugi grænlendingur var dæmdur í 19 ára fangelsi í héraðsdómi fyrir morðið á Birnu Brjánsdóttur í janúar 2017.

Møller Olsen neitar því staðfastlega að hafa myrt Birnu. Málsvörn hans byggir á að skipsfélagi hans, Nikolaj Olsen, hafi átt úlpuna sem fannst blóðug um borð í togaranum Polar Nanoq. Nikolaj var um borð í Kia Rio-bílnum þegar Birna steig upp í bílinn í miðbæ Reykjavíkur. Nikolaj bar fyrir sig minnisleysi vegna ofneyslu á áfengi.

Møller Olsen hefur haldið því fram að úlpan sé of lítil á sig. Hann hefur mátað hana undir eftirliti tæknideildar lögreglunnar og verður mynd af honum í úlpunni lögð fram í dag.

Kallað verður á ný vitni og munu skipverjar bera vitni í gengum síma.

Aldrei hefur verið upplýst hvað nákvæmlega átti sér stað nóttina sem Birna lést. Samkvæmt lögreglunni voru 130 til 150 óútskýrðir kílómetrar eknir á Kia Rio-bifreiðinni.  Fjölmiðlar munu ekki flytja fréttir af skýrslutökum fyrr en þeim lýkur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Heiða Björg svarar fyrir sig og birtir kortayfirlitið – „Á myndinni má sjá öll útgjöld mín“

Heiða Björg svarar fyrir sig og birtir kortayfirlitið – „Á myndinni má sjá öll útgjöld mín“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Snorri segir að íslenska skólakerfið hafi ekki verið hannað til að taka á móti öllum þessum erlendu börnum

Snorri segir að íslenska skólakerfið hafi ekki verið hannað til að taka á móti öllum þessum erlendu börnum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sigríður Á. segir Hönnu Katrínu fara með ósannindi um stuðningsmenn ÍBV og Miðflokkinn – „Sker sig úr frá öllum forverum sínum“

Sigríður Á. segir Hönnu Katrínu fara með ósannindi um stuðningsmenn ÍBV og Miðflokkinn – „Sker sig úr frá öllum forverum sínum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rústuðu íbúðinni og borguðu ekki leigu

Rústuðu íbúðinni og borguðu ekki leigu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pawel bendir á hræsni Einars – „Miðflokkurinn er mjög hissa að fjölmiðlar vilji ræða þetta stefnumál þeirra“

Pawel bendir á hræsni Einars – „Miðflokkurinn er mjög hissa að fjölmiðlar vilji ræða þetta stefnumál þeirra“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Efnaleki í Hafnarfirði

Efnaleki í Hafnarfirði
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Eineltishrottar verða hýddir í skólanum

Eineltishrottar verða hýddir í skólanum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Margrét segir Reykjavík minna á Svíþjóð hvað varðar tafir og skriffinnsku – „Umfram allt hef ég þurft að bíða“

Margrét segir Reykjavík minna á Svíþjóð hvað varðar tafir og skriffinnsku – „Umfram allt hef ég þurft að bíða“