fbpx
Mánudagur 11.maí 2026
Fréttir

Umsögn Vinnueftirlitsins um banaslysið á Reykjanesi

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 4. október 2018 20:11

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vinnueftirlitið hefur skilað HS Orku endanlegri umsögn vegna banaslyss sem varð í húsnæði fiskverkunarfyrirtækisins Háteigs á Reykjanesi þann 3. febrúar 2017.

Maðurinn sem lést í slysinu hét Adam Osowski. Adam var búsettur í Reykjanesbæ og hafði verið starfsmaður Háteigs í 11 ár.

Í tilkynningu frá HS Orku segir:

„Rannsókn hefur leitt í ljós að röð atvika varð til þess að brennisteinsvetnismengun frá háhitaholu sem ekki var í nýtingu fór inn á neysluvatnskerfi í húsnæði Háteigs með fyrrgreindum afleiðingum.

Strax og málið kom upp hóf starfsfólk HS Orku að eigin frumkvæði að rannsaka málið og hefur aðstoðað Vinnueftirlitið af bestu getu við að upplýsa það.

Í umsögn Vinnueftirlitsins eru gerðar athugasemdir í fjórum liðum sem snúa að HS Orku. Þegar hefur verið brugðist við þeim öllum, meðal annars hefur verið tryggt að gas eða önnur mengun geti ekki borist inn á í neysluvatnskerfi auk þess sem allir verkferlar og öryggisstjórnunarkerfi hafa verið yfirfarin til að fyrirbyggja að svona slys geti átt sér stað aftur.

Starfsfólk HS Orku tekur málið afskaplega nærri sér og er hugur þess hjá fjölskyldu mannsins sem lést í þessu hörmulega slysi.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Pinnahælar reyndust leigjendum dýrkeyptir

Pinnahælar reyndust leigjendum dýrkeyptir
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Heiða Björg keypti áfengi á kostnað borgarinnar

Heiða Björg keypti áfengi á kostnað borgarinnar