fbpx
Mánudagur 23.júní 2025
Fókus

Jakob er ekki pabbi dóttur sinnar: „Hegðaði mér ómeðvitað öðruvísi í kringum hana“

„Það er erfitt að verða ekki hugsað til hennar“ – Útilokaður sem faðir samkvæmt dómsúrskurði

Auður Ösp
Laugardaginn 15. október 2016 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það tók sinn tíma að rýna í niðurstöðurnar, allar þessar tölur sem komu með, og ná heildarmyndinni. En það sem ég gat séð var eitthvað um að það væru of margar breytur í DNA litlu stelpunnar sem væru frábrugðnar mínum,“
segir Jakobi T. Arnarsson sem í mars síðastliðnum bárust niðurstöður þess efnis að hann væri ekki líffræðilegur faðir níu mánaða dóttur sinnar.

Brot af viðtalinu má finna hér fyrir neðan en viðtalið má finna í heild sinni í helgarblaði DV.

Bréfið

Í mars kom svo bréfið. „Auðvitað þorði ég ekki að vera viss um að fá jákvæða niðurstöðu. En áfallið var samt gríðarlegt. Það var á níu mánaða afmælisdeginum hennar sem ég fékk tölvupóst frá Danmörku. Ég var á leiðinni í vinnuna og leit á tölvupóstinn í símanum. Einhverra hluta vegna opnaði ég ekki póstinn heldur dreif mig í vinnuna og ákvað að lesa hann þar,“ segir Jakob. Hjartað tók þónokkur aukaslög áður en hann las innihaldið. Í bréfinu stóð meðal annars:

„Í þessi tilviki er hvorugur af x litningum hennar sambærilegur við x litninga þína. Er því niðurstaðan sú að þú getur ekki verið líffræðilegur faðir hennar.“

Jakob kveðst hafa hitt litlu stúlkuna í síðasta skipti eitt kvöld í lok apríl. „Þegar hún sá mig teygði hún út hendurnar og sagði „pabba!“ „Það sveið að heyra það,“ segir hann en bætir við að óhjákvæmilega hafi hann litið á hana öðrum augum, vitandi að hann væri ekki blóðtengdur henni. „Það var mjög skrýtið og auðvitað hegðaði ég mér ómeðvitað allt öðruvísi í kringum hana vitandi hvar ég var staddur gagnvart henni líffræðilega séð. Þegar maður ert búinn að vera þátttakandi í lífi barns frá því það fæddist þá er þetta einfaldlega gríðarlega snúin staða. Ég upplifði ákveðna fjarlægð en vildi og reyndi að brúa þessa fjarlægð.“

Eitt prósent Íslendinga rangfeðrað

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, lét hafa eftir sér í sjónvarsþætti Hringbrautar í fyrra að minna en eitt prósent barna á Íslandi væri rangfeðrað en því hefur verið haldið fram að rangfeðrun hér á landi sé mun algengari en svo. Sagði hann niðurstöðurnar vera reistar á þremur kynslóðum Íslendinga á liðnum áratugum.

Á Íslandi gildir svokölluð faðernisregla eða „pater-est“-reglan sem byggist á því að svo sterkar líkur séu á því að barnið sé getið við samfarir konunnar við eiginmann sinn að gengið er út frá því sem reglu. Börn sem fæðast í hjúskap foreldra verða þannig sjálfkrafa börn eiginmanns eða sambýlismanns.

Samkvæmt barnalögum frá árinu 2003 er líffaðir barnsins einfaldlega réttlaus ef kona kennir barnið öðrum manni en kynföður þess, og sá maður gengst við því. Barnið getur sjálft höfðað véfengingarmál en það gerist ekki fyrr en eftir að það hefur alist upp án þess að kynnast lífföður sínum.

Sé barn feðrað sambýlismanni eða eiginmanni móðurinnar og í ljós kemur að ekki eru blóðtengsl á milli, þarf móðirin að höfða faðernismál fyrir hönd barnsins ef það er ekki orðið sjálfráða.

Við gerð síðustu barnalaga var í fyrsta sinn opnað á þann rétt karla að höfða faðernismál, telji þeir sig vera föður barns.

Gífurlegur söknuður

Niðurstöður danska DNA-prófsins þóttu ekki marktækar fyrir dómi og þurfti því að framkvæma nýtt próf á Landspítalanum. Íslenska lífsýnarannsóknin gaf sömu niðurstöður. Í kjölfarið var ógilding faðernis viðurkennd hjá Héraðsdómi Reykjavíkur. Í niðurstöðu héraðsdóms frá 17. júlí 2016 segir beinum orðum:

„Við samanburð hafi komið í ljós að þau erfðamörk, sem rannsökuð voru og stefnandi hafði tekið að erfðum frá föður, reyndust ekki öll fyrir hendi í erfðaefni stefnda. Samkvæmt niðurstöðu álitsgerðarinnar útilokast stefndi frá því að geta verið faðir stefnanda.“

Jakob segir fyrrverandi sambýliskonu sína hafa talið honum trú að það væri nánast fullvíst að hann væri faðir barnsins.
Réttur barns að vera rétt feðrað Jakob segir fyrrverandi sambýliskonu sína hafa talið honum trú að það væri nánast fullvíst að hann væri faðir barnsins.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Jakob er því ekki lengur skráður á pappírum sem faðir stúlkunnar. Hann á ekkert tilkall til hennar þó svo að hún hafi lagalega séð verið dóttir hans fyrstu níu mánuðina. Eina leiðin til að fá að umgangast hana er í gegnum móður hennar.
Jakob á ekki í neinum samskiptum við sína fyrrverandi og treystir sér ekki til þess. Það sama gildir um móðurfjölskyldu stúlkunnar. Það er því ekki auðvelt að nálgast fréttir af henni. En ef til vill er það fyrir bestu.

„Mér hefur verið ráðlagt af mínum nánustu að slíta mig frá þessu öllu, sem þýðir þá líka að slíta öll tengsl við stelpuna, því fyrr því betra á meðan hún er svona ung. En það er erfitt að verða ekki hugsað til hennar og ég upplifi gífurlegan söknuð í hvert skipti sem hugurinn leitar þangað. Ég er líka ennþá með myndir af henni á símanum mínum. Það eitt að sjá eða heyra í litlu barni hefur orðið til þess að ég verð að setjast niður og anda djúpt.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Nýjar íbúðir seljast verr en áður – En hvað kosta íbúðir í nýbyggingum á höfuðborgarsvæðinu?

Nýjar íbúðir seljast verr en áður – En hvað kosta íbúðir í nýbyggingum á höfuðborgarsvæðinu?
Fókus
Fyrir 4 dögum

Rannsókn bendir til þess að þetta vinsæla heilsuráð geti verið fitandi

Rannsókn bendir til þess að þetta vinsæla heilsuráð geti verið fitandi
Fókus
Fyrir 5 dögum

Feilspor Viðars hefur fengið 1,6 milljón áhorfa – „Ótrúleg tímasetning!“

Feilspor Viðars hefur fengið 1,6 milljón áhorfa – „Ótrúleg tímasetning!“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Stórleikarinn er sjötugur og barn átta á leiðinni

Stórleikarinn er sjötugur og barn átta á leiðinni
Fókus
Fyrir 1 viku

Aukasýning á vinsælustu ABBA sýningu heims í Hörpu

Aukasýning á vinsælustu ABBA sýningu heims í Hörpu
Fókus
Fyrir 1 viku

Dóttir Bruce Willis með tilfinningaþrungna færslu um ástand hans

Dóttir Bruce Willis með tilfinningaþrungna færslu um ástand hans