

Brynjar Níelsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins var handtekinn í Boston í Bandaríkjunum ásamt þremur vinum sínum í síðustu viku. „Við áttum nokkra góða daga í New York fylki eftir að ég losnaði úr haldi,“ segir Brynjar í samtali við DV og segir að þeim hafi verið sleppt strax en hann lýsir atvikinu í stuttum pistli á Facebook á þessa leið:
„Ég segi farir mínar ekki sléttar eftir heimsókn til Bandaríkjanna. Við fjórir miðaldra karlar keyptum lestarmiða á netinu frá Boston til New York. Þegar á lestarstöðina kom var miðasölubás þessa lestarkompanýs lokaður.
Töldum við þá duga að staðfesta greiðslu með snjallsímanum og gengum um borð. En það var öðru nær. Á næstu stoppistöð voru við dregnir af klósettinu, með nánast allt niðrum okkur, leiddir út og gegnum lestarstöðina með öll augu á okkur, af sterklegum lögreglumönnum.“
Brynjar segir að þeir hafi reynt að skýra sín mál fyrir lögreglunni og sögðust vera á leið til New York til að hitta eiginkonur sínar. „Þeir glottu yfir þessum „Englum Alheimsins“ og töldu fráleitt að svona menn ættu eiginkonur.“
Brynjar bætir við að hann hafi náð að senda konunni smáskilaboð til að láta vita af töf vegna handtökunnar. „Fékk ég sms til baka sem var einhvern vegin svona: Æ, æ, appelsínugulur hefur aldrei farið þér vel.“
Í samtali við DV segir Brynjar að þeir séu komnir heim eftir vel heppnaða ferð:
„Þetta er aðeins fært í stílinn og okkur var sleppt strax,“ segir Brynjar og bætir við: „Hins vegar eru viðbrögð eiginkonunnar ekkert ýkt enda haldið að ég væri að ljúga um handtökuna og bara tafist vegna drykkjuskapar og almennrar óreglu í Boston.“