Búast má við vandræðalegu andrúmslofti á fundi með forseta Mexíkó
Donald Trump forsetaefni Repúblikana kemur til með að heimsækja Mexíkó og funda með Enrique Pena Nieto forseta landsins. Þetta kemur fram í Twitter-færslu Trump. Nieto hefur boðið bæði Trump og Hillary Clinton forsetaefni Demókrata til að funda með sér um málefni nágrannaríkjanna.
Telja má öruggt að andrúmsloftið á fundi þeirra Nieto og Trump verði eitthvað þvingað eða vandræðalegt þar sem báðir aðilar hafa farið misfögrum orðum um hvorn annan. Eins og frægt er orðið hefur Trump kallað Mexíkóa nauðgara, fíkniefnasala og hefur heitið því að byggja risastóran vegg milli landanna til að halda Mexíkóum í heimalandinu. Nieto hefur að sama skapi líkt Trump við Adolf Hitler.
Trump fer nú dalandi í skoðakönnunum og hefur ráðið til sín nýjan kosningastjóra sem hefur látið forsetaframbjóðandann draga heldur úr umdeildum ummælum. Ekki er víst hvaða áhrif heimsóknin kemur til með að hafa, hugsanlega myndi Trump segja eitthvað til að móðga Nieto eða þá að hörðustu stuðningsmenn hans snúi bakinu við honum fyrir að vingast við óvininn.