fbpx
Miðvikudagur 07.maí 2025
Fókus

Justin Bieber lentur á Íslandi

Lenti á Reykjavíkurflugvelli á einkaþotu – Fjöldi aðdáenda beið eftir poppgoðinu

Einar Þór Sigurðsson
Miðvikudaginn 7. september 2016 12:22

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Var samankominn á Reykjavíkurflugvelli í dag.
Fjöldi fólks Var samankominn á Reykjavíkurflugvelli í dag.

Poppstjarnan Justin Bieber lenti á Reykjavíkurflugvelli nú í hádeginu, en hann er hingað kominn vegna tvennra tónleika sem hann heldur í Kórnum annað kvöld og á föstudagskvöld.

Bieber kom hingað til lands á einkaþotu af gerðinni Gulfstream G550, en Bieber hefur áður notast við þessa tegund flugvélar. Fjöldi fréttamanna var á Reykjavíkurflugvelli í hádeginu til að freista þess að ná myndum og jafnvel tali af Bieber. Þá voru íslenskir aðdáendur hans mættir á Reykjavíkurflugvöll til að reyna að berja poppgoðið augum.

Í beinni sjónvarpsútsendingu á vef Vísis mátti meðal annars sjá starfsmenn Reykjavíkurflugvellar bera farangur tónlistarmannsins úr vélinni. Þar mátti meðal annars finna brimbretti, tvö hjólabretti, íshokkíkylfur og gítar svo fáein dæmi séu tekin. Það er því aldrei að vita nema kappinn skelli sér á brimbretti, nú eða niður Laugaveginn á hjólabretti.

Bieber var vel fagnað þegar hann steig út úr vélinni, en rúmur hálftími leið frá því vélin lenti þar til Bieber fór út úr vélinni. Bieber er enn á Reykjavíkurflugvelli, en óvíst er hvert ferðinni er heitið í dag. Þyrla frá Þyrluþjónustunni beið þó eftir Bieber og þegar þetta er skrifað er hún enn á Reykjavíkurflugvelli.

Tónleikar Biebers á Íslandi marka upphaf Purpose-tónleikaferðalags hans um Evrópu til að kynna nýjustu plötu þessa kanadíska tónlistarmanns. Gera má ráð fyrir að rúmlega 30 þúsund manns muni fara á tónleika Biebers hér á landi.

Bieber finnst gaman á hjólabretti.
Hjólabretti Bieber finnst gaman á hjólabretti.
Justin Bieber fór út í þessa Mercedez Bens-bifreið. Bifreiðin er skráð á Servio ehf. sem er í eigu Securitas.
Út í bíl Justin Bieber fór út í þessa Mercedez Bens-bifreið. Bifreiðin er skráð á Servio ehf. sem er í eigu Securitas.

Mynd: DV

Uppfært klukkan 13:21

Bieber fór með þyrlu frá Reykjavíkurflugvelli. Samkvæmt heimildum Vísis mun hann búa í einbýlishúsi rétt utan við Reykjavík á meðan hann dvelur á Íslandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Hafa miklar áhyggjur af Justin Bieber – Vinnur ekkert, sólundar fé og sinnir ekki syninum

Hafa miklar áhyggjur af Justin Bieber – Vinnur ekkert, sólundar fé og sinnir ekki syninum
Fókus
Fyrir 2 dögum

Smáatriði í mynd af Justin Bieber á Íslandi veldur fjaðrafoki

Smáatriði í mynd af Justin Bieber á Íslandi veldur fjaðrafoki
Fókus
Fyrir 4 dögum

Spielberg segir að þetta sé besta bandaríska bíómyndin

Spielberg segir að þetta sé besta bandaríska bíómyndin
Fókus
Fyrir 4 dögum

Þetta er lúxusvillan sem Justin Bieber gistir í á Íslandi – Nóttin kostar allt að 12 milljónir krónur

Þetta er lúxusvillan sem Justin Bieber gistir í á Íslandi – Nóttin kostar allt að 12 milljónir krónur
Fókus
Fyrir 5 dögum

Gleymdu Ozempic andliti, nú vara sérfræðingar við „Ozempic munni“

Gleymdu Ozempic andliti, nú vara sérfræðingar við „Ozempic munni“
Fókus
Fyrir 5 dögum

102 ára prófessor í næringarfræði segir að þessi sjö atriði séu lykillinn þegar kemur að langlífi

102 ára prófessor í næringarfræði segir að þessi sjö atriði séu lykillinn þegar kemur að langlífi